Lilja Dóra Hjörleifsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Lilja Dóra Hjörleifsdóttir húsfreyja fæddist 7. október 1947 á Heimagötu 30.
Foreldrar hennar Hjörleifur Guðnason múrarameistari, húsvörður, f. 5 júní 1925 að Hjarðarholti í Seyðisfirði, d. 13. júní 2007, og kona hans Inga Jóhanna Halldórsdóttir frá Norðfirði, húsfreyja, f. 30. nóvember 1927.

Börn Ingu og Hjörleifs:
1. Lilja Dóra Hjörleifsdóttir, f. 7. október 1947.
2. Guðmunda Hjörleifsdóttir, f. 23. apríl 1949.
3. Guðjón Hjörleifsson, f. 18. júní 1955.
4. Guðni Hjörleifsson, f. 8. nóvember 1957.
5. Halldór Hjörleifsson, f. 9. nóvember 1960.
6. Sigrún Hjörleifsdóttir, f. 25. ágúst 1962.
7. Jónína Björk Hjörleifsdóttir, f. 24. maí 1966.

Lilja Dóra var með foreldrum sínum í æsku.
Hún varð gagnfræðingur í Gagnfræðaskólanum 1963, nam við Húsmæðraskólann Ósk á Ísafirði 1965-1966.
Lilja Dóra vann við fiskiðnað á yngri árum sínum.
Þau Steinar giftu sig 1968, eignuðust fimm börn. Þau bjuggu við Kirkjubæjarbraut 9, við Hólagötu 7 og Foldahraun 40, ráku kaffiteríu í Íþróttamiðstöðinni í Eyjum 1976-1977, fluttu til Rvk 1977, þar sem Lilja Dóra vann í versluninni Straumnesi í 2 ár. Hún vann síðan við heimabakstur í Kökugerð Lilju. Þau fluttu í Voga á Vatnsleysuströnd 1984 og til Eyja 1986. Þar bjuggu þau í Lyngfelli og þar bakaði Lilja og seldi.
Þau fluttu á Kjalarnes, bjuggu í Hjassa, síðan í Hafnarfirði 1993-1994. Þá fluttu þau til Ólafsvíkur, bjuggu þar til 1995, en fluttu þá til Eyja, bjuggu við Faxastíg 35 og við Ásaveg 20. Þau fluttu til Selfoss 1996.
Steinar lést 1998.
Þau Friðrik Ingi giftu sig 2003. Þau bjuggu í Reykjavík. Þau skildu.
Þau Grétar giftu sig 2014. Þau fluttu til Sandgerðis, búa í Lækjarmótum 41.

I. Maður Lilju Dóru, (28. desember 1968), var Steinar Benjamínsson sjómaður, bifreiðastjóri, f. 11. febrúar 1944, d. 18. ágúst 1998.
Börn þeirra:
1. Hjörleifur Hreiðar Steinarsson skrifstofumaður, f. 20. maí 1969 í Eyjum. Kona hans Katrín Brynjarsdóttir
2. Benjamín Steinarsson, f. 19. apríl 1973 í Hafnarfirði. Barnsmóðir hans Dagný Baldursdóttir. Fyrrum kona hans Gerður Petra Ásgeirsdóttir.
3. Guðlaugur Ingi Steinarsson lagermaður, f. 8. desember 1977 í Rvk. Fyrrum kona hans Dagný Ösp Helgadóttir. Barnsmóðir hans Kristín Guðmundsdóttir. Kona hans Unnur Líndal Karlsdóttir.
4. Guðlaug Birna Steinarsdóttir félagsráðgjafi, f. 14. janúar 1979 í Rvk. Sambúðarmaður Olayinka Isaac Abioye.
5. Inga Rós Steinarsdóttir húsfreyja, f. 15. nóvember 1985 í Keflavík. Fyrrum maður hennar Magnús Kjartan Eyjólfsson. Sambúðarmaður hennar Guðmundur Valdimarsson.

II. Maður Lilju Dóru, (14. nóvember 2003, skildu 2007), er Friðrik Ingi Óskarsson endurskoðandi, f. 16. febrúar 1948.

III. Maður Lilju Dóru, (30. nóvember 2014), er Grétar Þorleifsson húsgagna- og húsasmiður, f. 12. september 1944. Foreldrar hans Bill Warner og Margrét Þorleifsdóttir, f. 28. júlí 1926, d. 25. október 1995.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.