Lyngfell

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Bærinn Lyngfell stóð utan byggðar, nokkuð sunnan við bæi Ofanbyggjara, skammt frá Ömpustekkjum. Lyngfell var bújörð og þar stundaður búskapur. Guðlaugur Guttormsson, bróðir Einars sjúkrahússlæknis, var síðasti ábúandi að Lyngfelli og rak þar stórt hænsnabú fram að gosi 1973. Íbúðarhúsið og hænsnahúsin voru rifin eftir gos en hlaðan stendur enn og hefur verið notuð sem hesthús tómstundabænda sem einnig hafa nýtt tún jarðarinnar. Nýtt timburhús var reist á jörðinni árið 1982, nokkru vestar en gamla íbúðarhúsið sem notað var í slökkviliðsæfingu árið 2004, og rifið að því loknu.