Jónas Sigurðsson (Skuld)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 20. júní 2006 kl. 14:05 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 20. júní 2006 kl. 14:05 eftir Margret (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Jónas Sigurðsson, Skuld, fæddist að Helluvatni á Rangárvöllum 29. mars 1907. Jónas fluttist ársgamall með foreldrum sínum, Sigurði Oddssyni og Ingunni Jónasdóttur, til Vestmannaeyja þar sem hann ólst upp. Ungur hóf Jónas sjómennsku á Baldri og síðar á Minervu. Árið 1927 byrjar Jónas formennsku á Skógarfossi og er með hann í 9 vertíðir. Eftir það er hann með fleiri báta, meðal annars Skíðblaðni og Gulltopp. Eftir að Jónas lét af sjómennsku gerðist hann húsvörður við Gagnfræðaskóla Vestmannaeyja.



Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.