Ingunn Larsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. janúar 2016 kl. 18:13 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. janúar 2016 kl. 18:13 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Ingunn Anne Marie Larsdóttir Tranberg''' fæddist 6. maí 1841 í Sorgenfri og mun hafa látist í Danmörku.<br> Foreldrar hennar voru Lars Tranberg formaðu...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Ingunn Anne Marie Larsdóttir Tranberg fæddist 6. maí 1841 í Sorgenfri og mun hafa látist í Danmörku.
Foreldrar hennar voru Lars Tranberg formaður, hafnsögumaður, f. um 1805 í Gudhjem á Borgundarhólmi, d. 30. ágúst 1860 í Eyjum, og fyrri kona hans Guðrún Sigurðardóttir húsfreyja, f. 14. maí 1814 í Hallgeirsey í A-Landeyjum, d. 16. júlí 1842 í Eyjum.

Börn Lars Tranberg í Eyjum voru:
I. Börn Guðrúnar og Lars:
1. Amalía Kristín Larsdóttir, f. 3. nóvember 1837, d. 10. febrúar 1847.
2. Anne Marie Larsdóttir, f. 18. október 1839, d. 25. október 1839.
3. Ingunn Anne Marie Larsdóttir, f. 6. maí 1841.

II. Barnsmóðir Lars var Halldóra Jónsdóttir frá Söndum í Meðallandi, V-Skaft., síðar húsfreyja á Steinsstöðum, kona Sigurðar Vigfússonar bónda.
4. Barn þeirra var Guðrún Larsdóttir, f. 23. maí 1843, d. 22. ágúst 1843 úr ginklofa.

III. Síðari kona Lars skipstjóra, (20. október 1849), var Gunnhildur Oddsdóttir, f. 9. október 1824, á lífi 1882.
Börn Gunnhildar og Lars:
5. Alexander Tranberg, f. 10. desember 1850, d. 18. desember 1850, orsakar ekki getið.
6. Amalie Eleonora Larsdóttir, f. 25. júlí 1852. Hún fór utan um tvítugt, giftist í París dönskum söðlasmíðameistara, Emil Hansen. Þau fóru til Chicago.
7. Kristjana Margrét Larsdóttir, f. 9. október 1854, d. 11. febrúar 1866.
8. Maria Maren Kristensa Larsdóttir, f. 7. júní 1857, d. 1934. Hún var fósturdóttir Jórunnar Jónsdóttur Austmann. Hún fór til Chicago. Maður hennar var Chr. Nielsen.
9. Jakob Sandersen Larsson Tranberg, f. 7. ágúst 1860, d. 21. maí 1945.

Ingunn missti móður sína er hún var eins árs. Hún var með föður sínum í Sjólyst 1845, með honum í Larshúsi 1846, var tökubarn í Þorlaugargerði 1847-1857, (rangnefnd Amalie um skeið, en systir hennar Amalie dó 1847. Þetta var leiðrétt 1852). Hún var með Lofti og Guðrúnu í Þorlaugargerði enn 1857 og fór með þeim úr landi 17 ára, þegar Loftur og Guðrún fluttust til Utah. Stefnt var til Englands í fyrstu. Þau höfnuðu sig í Liverpool og Ingunn mun hafa farið frá Englandi til Danmerkur. Þar bjó hún síðan að sögn.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.