Sigurður Vigfússon (Steinsstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sigurður Vigfússon bóndi á Steinsstöðum fæddist 31. maí 1791 á Steig í Mýrdal og lést 15. apríl 1857 úr „langvarandi brjóstveiki“.
Foreldrar hans voru Vigfús Ólafsson bóndi á Steig og víðar í Mýrdal, f. 1759, d. 10. nóvember 1817, og kona hans Guðfinna Jónsdóttir húsfreyja, f. 1761.

Sigurður var með foreldrum sínum í Álftagróf 1801.
Hann var vinnumaður á Eystri-Sólheimum í Mýrdal 1817 eða fyrr til 1820.
Hann fór til Eyja 1820, var þar sjómaður og vinnumaður á Vesturhúsum. Þau Guðrún giftust 1824 og voru komin að Steinsstöðum 1825. Þar bjuggu þau síðan.
Eftir lát Guðrúnar bjó Sigurður með Halldóru og kvæntist henni 1849.

I. Fyrri kona hans, (5. september 1824), var Guðrún Guðmundsdóttir húsfreyja, áður vinnukona á Gjábakka og Vesturhúsum, f. 27. október 1794, d. 7. júlí 1848 „af innvortis veikindum“.
Börn þeirra hér:
1. Málfríður Sigurðardóttir, f. 12. ágúst 1824, d. 19. ágúst 1824 úr „Barnaveiki“, líklega ginklofi.
2. Jón Sigurðsson, f. 11. september 1825, d. 10. ágúst 1825 úr ginklofa.
3. Guðmundur Sigurðsson, f. 4. nóvember 1826, d. 9. nóvember 1826 úr ginklofa.
4. Hallgrímur Sigurðsson, f. 8. ágúst 1828, d. 11. ágúst 1828, dánarorsök ekki skráð.

II. Síðari kona Sigurðar, (3. október 1849), var Halldóra Jónsdóttir húsfreyja á Steinsstöðum, f. 10. október 1819, d. 24. mars 1883.
Börn þeirra voru
5. Sigurður Sigurðsson, f. 16. mars 1850, d. 29. mars 1850 „af Barnaveikindum“.
6. Guðbjörg Sigurðardóttir, f. 4. maí 1852, d. 12. maí 1852 af „Barnaveikleika“.
7. Guðrún Sigurðardóttir, f. 5. september 1853, d. 10. september 1853 „af ginklofa eftir sögn“.
8. Margrét Sigurðardóttir húsfreyja í Dölum, f. 28. júní 1855, d. 23. desember 1893.
Fósturdóttir Sigurðar, barn Halldóru var
9. Halldóra Samúelsdóttir, f. 19. september 1844.


Heimildir