Guðrún Guðmundsdóttir (Steinshúsi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 1. mars 2014 kl. 21:05 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 1. mars 2014 kl. 21:05 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Guðrún Guðmundsdóttir húsfreyja í Steinshúsi fæddist 1786 á Kanastöðum í A-Landeyjum og lést 16. febrúar 1829.
Foreldrar hennar voru Guðmundur Ólafsson bóndi í A-Landeyjum, en síðast á Kirkjubæ, f. 1785, d. 3. febrúar 1820 á Kirkjubæ, og fyrri kona hans Ingibjörg Jónsdóttir húsfreyja, ættuð úr Eyjum, f. 1763, d. 19. maí 1810.

Guðrún var systir Ólafs Guðmundssonar smiðs og bónda á Kirkjubæ, f. 17. janúar 1798, d. 14. júlí 1869, Margrétar Guðmundsdóttur eldri, húsfreyju í Dölum, f. 1787, d. 14. nóvember 1848 og Ingveldar Guðmundsdóttur húsfreyju á Kirkjubæ, f. 11. október 1791, d. 30. júní 1841. Hálfbróðir þeirra var Jón Guðmundsson, f. 11. október 1794, d. 23. október 1794. Móðir hans var Málfríður Jónsdóttir, þá vinnukona í Kornhól f. 1773, d. um 1815.

Guðrún var með foreldrum sínum á Bryggjum 1801. Hún var vinnukona í Voðmúlastaðahjáleigu þar 1816.
Hún var á Búastöðum 1820 við fæðingu Þuríðar, húskona í Dölum 1823 og 1824, en var komin í Steinshús 1826 og varð bráðkvödd þar 1829.

I. Maður Guðrúnar var Steinn Guðmundsson tómthúsmaður í Steinshúsi, f. 1791, d. 1. janúar 1829.
Börn þeirra hér:
1. Þuríður Steinsdóttir, f. 14. nóvember 1820, d. 22. nóvember 1820 „af barnaveiki“, (mun vera ginklofi) .
2. Guðmundur Steinsson, f. 6. júní 1823, d. 17. júní 1823 „af barnaveikinni“, (mun vera ginklofi).
3. Þuríður Steinsdóttir, f. 11. júní 1824, d. 18. júní 1824 „af kæfandi sjúkdómi“ , (líklega stífkrampi, ginklofi).
4. Jónas Steinsson, f. 16. júlí 1826, d. 26. júlí 1826 úr „Barnaveiki“, (mun vera ginklofi).


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.