Guðfinna Steindórsdóttir Wíum

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 24. september 2018 kl. 15:26 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 24. september 2018 kl. 15:26 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Guðfinna Jóna Steindórsdóttir Wíum''' húsfreyja fæddist 27. febrúar 1909 í Götuhúsum á Stokkseyri og lést 14. maí 1998 á Hjúkrunarheimilinu Skjóli í Reykjavík.<b...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðfinna Jóna Steindórsdóttir Wíum húsfreyja fæddist 27. febrúar 1909 í Götuhúsum á Stokkseyri og lést 14. maí 1998 á Hjúkrunarheimilinu Skjóli í Reykjavík.
Foreldrar hennar voru Steindór Sæmundsson bifreiðastjóri, afgreiðslumaður í kvikmyndahúsi, f. 26. janúar 1881 í Auðsholtshjáleigu í Ölfusi, d. 9. ágúst 1948, og kona hans Guðbjörg Jónsdóttir, f. 13. október 1883 á Nabba í Flóa, d. 13. september 1980.

Börn Guðbjargar og Steindórs voru:
Börn þeirra:
1. Sófónías Sæmundur Steindórsson, f. 21. október 1905, d. 6. desember 1907.
2. Guðfinna Jóna Steindórsdóttir Wíum húsfreyja, f. 27. febrúar 1909 í Götuhúsum á Stokkseyri, d. 14. maí 1998.
3. Óskar Steindórsson kvikmyndasýningamaður, f. 28. maí 1920 í Jóhannshúsi, d. 14. febrúar 2002.

Guðfinna var með foreldrum sínum í æsku, fluttist með þeim frá Stokkseyri að Staðarfelli 1913. Þar bjuggu þau hjá Einari Sæmundssyni föðurbróður hennar til 1914, fluttust þá að Geirlandi, þar sem þau leigðu til 1916, síðan í Jóhannshús við Vesturveg 4 og þar bjó hún unglingsárin.
Þau Gísli giftu sig 1930, bjuggu í Jóhannshúsi. Á Ingólfshvoli bjuggu þau 1931 við fæðingu Elísu Bjargar, á Hásteinsvegi 42 við fæðingu Dóru Sifjar. Um eins árs skeið bjuggu þau í Neskaupstað. Þau fluttust í hús sitt á Heiðarvegi 9 síðari hluta fjórða áratugarins. Gísli leigði Bifreiðastöðinni neðri hæðina og var framkvæmdastjóri hennar til 1942, en þá hóf hann verslunarrekstur í húsinu. Á Heiðarveginum bjuggu þau síðan uns þau fluttu til Reykjavíkur 1957.
Gísli lést 1972 og Guðfinna 1998.

I. Maður Guðfinnu, (10. maí 1930), var Gísli Guðmundsson Wíum frá Mjóafirði eystra, kaupmaður, f. 22. maí 1901, d. 27. júní 1972.
Börn þeirra:
1. Elísa Björg Gísladóttir Wíum húsfreyja í Garðabæ, myndlistarmaður, f. 12. febrúar 1931, d. 23. desember 2017. Maður hennar var Gunnar Jónsson.
2. Dóra Sif Gísladóttir Wíum húsfreyja, f. 20. mars 1934.
Sonur Gísla fyrir hjónaband ólst upp hjá Guðfinnu og Gísla:
3. Kristinn Gíslason Wíum, f. 17. júní 1926 í Skálholti yngra, d. 13. janúar 1994.



Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.