Dalfjall

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. júlí 2005 kl. 12:34 eftir Smari (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. júlí 2005 kl. 12:34 eftir Smari (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Dalfjall er um 150 metra hátt fjall sem stendur norður af Herjólfsdal, og dragur hann nafn sitt frá því. Það gengur frá austri til vesturs og myndar nokkurskonar skál um norðurhlið dalsins. Vestasti hluti fjallsins kemur saman í hnjúk að nafni Blátindur. Austast í fjallinu gengur Náttmálaskarð yfir að Klifunum til norðurs, og lítið gil aðgreinir Dalfjall frá Molda að sunnan. Efsti partur Dalfjalls kallast Eggjar, en þar fyrir neðan er Saltaberg sunnan megin, og Ufsaberg norðan megin.

Í vestri blasa við Smáeyjar, nyrst og vestast Grasleysa, nær Hrauney, loks Hani og Hæna. Drangurinn syðst heitir Jötunn, sjómannafélagið í Vestmannaeyjum dregur nafn sitt af þessum virðulega drangi.