Brimurð

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. júlí 2005 kl. 11:09 eftir Smari (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. júlí 2005 kl. 11:09 eftir Smari (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Brimurð er fjara sunnan við Ræningjartanga, innan við Stórhöfða að austan. Hún afmarkast til vesturs af Aur og til norðurs af Litlahöfða.

Brimurð er þekkt fyrir mikinn öldugang, og ná öldurnar allt að tíu metra hæð þar. Þetta hefur gert norðurfjöru Brimurðar mjög brimsvorfna. Ofarlega í brimurðinni má finna mikið af steinum með holufyllingar.