„Blátindur“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Blátindur færð á Blátindur (hús))
 
Ekkert breytingarágrip
 
(5 millibreytingar ekki sýndar frá 4 notendum)
Lína 1: Lína 1:
#redirect [[Blátindur (hús)]]
''Einnig er til samnefnt hús sem heitir eftir fjallinu sem lýst er í þessari grein. Sjá [[Blátindur (hús)|Blátindur]].''
----
[[Mynd:Jardskja.JPG|thumb|left|Blátindur í skjálftanum árið 2000.]]
{{Fjöll}}
'''Blátindur''' er næsthæsti tindur Vestmannaeyja, á eftir [[Heimaklettur|Heimakletti]]. Hann stendur í 273 metra hæð yfir sjávarmáli ofan á [[Dalfjall]]i, og gnæfir því yfir [[Herjólfsdalur|Herjólfsdal]], með tvær stórar gjótur hvorum megin við sig — [[Stafsnes]]ið að norðan og [[Kaplagjóta|Kaplagjótu]] að sunnan.
Í Suðurlandsskjálftanum 17. júní 2000 hrundi mikið úr tindinum og trintunum allt í kring. Fjölmenn hátíðahöld í tilefni dagsins stóðu sem hæst í Dalnum er skjálftinn hófst. Minnugir eldgoss og fleiri hamfara, vissu hátíðargestir ekki hvaðan á þá stóð veðrið.    Mikil skriðuföll og hávaði riðu yfir Dalinn,  fólk hljóp í allar áttir, skelfingu lostið en engin alvarleg slys urðu á fólki í hamförunum. Á toppi tindsins var grjótvarða með fánastöng, en þaðan er strengt skraut á [[Þjóðhátíð]] þvert yfir dalinn yfir á [[Moldi|Molda]]. Varðan, ásamt fánastönginni hrundi í [[Suðurlandsskálftar|Suðurlandsskjálftunum]] en stöngin hefur verið endurreist síðan.


[[Flokkur:Stubbur]]

Núverandi breyting frá og með 18. ágúst 2006 kl. 14:03

Einnig er til samnefnt hús sem heitir eftir fjallinu sem lýst er í þessari grein. Sjá Blátindur.


Blátindur í skjálftanum árið 2000.

Blátindur er næsthæsti tindur Vestmannaeyja, á eftir Heimakletti. Hann stendur í 273 metra hæð yfir sjávarmáli ofan á Dalfjalli, og gnæfir því yfir Herjólfsdal, með tvær stórar gjótur hvorum megin við sig — Stafsnesið að norðan og Kaplagjótu að sunnan. Í Suðurlandsskjálftanum 17. júní 2000 hrundi mikið úr tindinum og trintunum allt í kring. Fjölmenn hátíðahöld í tilefni dagsins stóðu sem hæst í Dalnum er skjálftinn hófst. Minnugir eldgoss og fleiri hamfara, vissu hátíðargestir ekki hvaðan á þá stóð veðrið. Mikil skriðuföll og hávaði riðu yfir Dalinn, fólk hljóp í allar áttir, skelfingu lostið en engin alvarleg slys urðu á fólki í hamförunum. Á toppi tindsins var grjótvarða með fánastöng, en þaðan er strengt skraut á Þjóðhátíð þvert yfir dalinn yfir á Molda. Varðan, ásamt fánastönginni hrundi í Suðurlandsskjálftunum en stöngin hefur verið endurreist síðan.