Björn Björnsson (Hjalli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 2. desember 2013 kl. 21:47 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 2. desember 2013 kl. 21:47 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Björn Björnsson í Hjalli, fæddist 1776 og lést í Hjalli 12. júní 1843.
Faðir hans var Björn bóndi í Vetleifsholti í Ásahreppi, Árn., f. 1733, d. 8. október 1812, Felixsson (líklega) bónda í Suður-Móeiðarhvolshjáleigu í Hvolhreppi, Rang., f. 1706, d. í ágúst 1752, Sigvaldasonar og konu Felix, Ingibjargar Þorkelsdóttur, f. 1689, d. í mars 1770.
Móðir Björns í Hjalli var Guðrún Jónsdóttir.
Björn var tvígiftur:
I. Fyrri kona hans var Kristín húsfreyja, f. 1760, á lífi 1814. Börn þeirra Kristínar og Björns:
1. Valdís Björnsdóttir í Kokkhúsi í Eyjum, f. 21. apríl 1799, d. 31. mars 1835, kona Gísla Andréssonar.
2. Ragnhildur, f. 1. júlí 1802, d. líklega ung.

II. Síðari kona Björns var Guðrún Sigurðardóttir, f. 17. ágúst 1787 í Brók í V-Landeyjum, d. 10. júlí 1852.
Börn þeirra Björns og Guðrúnar voru:
1. Guðrún, f. 27. mars 1824, d. 4. febrúar 1872, húsfreyja í Gvendarkoti í Þykkvabæ, gift Grími Guðmundssyni.
2. Kristín húsfreyja í Smiðjunni í Eyjum, f. 8. júní 1825, d. 7. febrúar 1860, gift Guðmundi Eiríkssyni.
3. Hjalti, f. 8. júní 1825, d. líklega ungur.
4. Björn, f. 27. október 1826, d. 6. nóvember s. ár.
5. Guðríður, f. 14. apríl 1828, d. 4. september 1860, húsfreyja á Vilborgarstöðum, gift Þorsteini Jónssyni.
Barn átti Björn með Guðrúnu Vigfúsdóttur, f. 1772, d. 31. desember 1840, síðar húsfreyju í Berjanesi undir Eyjafjöllum. Barnið var:
1. Ólafur Björnsson vinnumaður á Kirkjubæ í Eyjum, f. 26. febrúar 1808, d. 26. febrúar 1848, kvæntur Ingveldi Guðmundsdóttur.

Björn bjó í Vetleifsholti með Kristínu fyrri konu sinni 1798-1799, á Hrafnatóftum 1799-1800, í Árbæjarhjáleigu 1800-1802 og í Lambhúshól í Vetleifsholtshverfi 1893-1804.
Þau Kristín fluttu síðan til Eyja. Þau voru sjálfra sín í Dölum 1814. Björn var tómthúsmaður á Vilborgarstöðum 1816-1823, í Ólafshúsum bjó hann 1824-1825, en síðast í Hjalli 1825-1843.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Holtamannabók I–Holtahreppur. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjórn: Ragnar Böðvarsson. Rangárþing ytra, Hellu 2006.
  • Manntöl.