Kristín Hafliðadóttir (Vilborgarstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Kristín Hafliðadóttir húsfreyja á Vilborgarstöðum fæddist 1760 og lést 25. apríl 1821.
Faðir hennar var Hafliði bóndi á Ystaskála undir Eyjafjöllum, f. 1721, d. 4. október 1788, Árnason bónda á Leirum, f. 1684, d. 1733, Eiríkssonar og konu Árna Katrínar Þorsteinsdóttur, f. 1691, á lífi 1746.
Kona Hafliða Árnasonar og móðir Kristínar var Ragnhildur, f. 1721, d. 23. desember 1804, Ólafs bónda á Hrútafelli undir Eyjafjöllum, f. 1699, Þórarinssonar og konu Ólafs, Margrétar Jónsdóttur, f. 1702.

Kristín bjó með Birni í Vetleifsholti 1798-1799, á Hrafnatóftum 1799-1800, í Árbæjarhjáleigu 1800-1802 og í Lambhúshól í Vetleifsholtshverfi 1893-1804.
Þau fluttu síðan til Eyja. Þar var Kristín húsfreyja í tómthúsi á Vilborgarstöðum 1816-dd. 1821.

I. Maður Kristínar (20. júlí 1797) var Björn Björnsson bóndi, f.1776, d. 12. júní 1843. Kristín var fyrri kona hans.
Börn þeirra Kristínar og Björns:
1. Valdís Björnsdóttir í Kokkhúsi í Eyjum, f. 21. apríl 1799, d. 31. mars 1835, kona Gísla Andréssonar.
2. Ragnhildur, f. 1. júlí 1802, d. líklega ung.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Holtamannabók I–Holtahreppur. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjórn: Ragnar Böðvarsson. Rangárþing ytra, Hellu 2006.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.