Kervíkurfjall

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. júlí 2005 kl. 13:02 eftir Smari (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. júlí 2005 kl. 13:02 eftir Smari (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Kervíkurfjall stendur suður af Sæfjalli

Í fallegu veðri er útsýni af Kervíkurfjalli sérlega tignarlegt. Úti á Stakkabót liggja Litli- og Stóri Stakkur. Jarðfræðingar telja „Bótina“ vera risastóran eldgíg, þar sem „Stakkarnir“ eru væntanlega gígtappinn. Í norðri eru Sæfjall og Lambaskorur. Milli Kervíkurfjalls og Litlahöfða er Kópavík, út af víkinni kúrir Landstakkur.