Jónas Sigurðsson (Skuld)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. ágúst 2006 kl. 13:03 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. ágúst 2006 kl. 13:03 eftir Daniel (spjall | framlög) (afturkallaði síðu!!!)
Fara í flakk Fara í leit

Jónas Sigurðsson, Skuld, fæddist að Helluvatni á Rangárvöllum 29. mars 1907. Jónas fluttist ársgamall með foreldrum sínum, Sigurði Oddssyni og Ingunni Jónasdóttur, til Vestmannaeyja þar sem hann ólst upp. Jónas var kvæntur Guðrúnu Kristínu Ingvarsdóttur. Einn sona þeirra er Sigurgeir Jónasson.

Ungur hóf Jónas sjómennsku á Baldri og síðar á Minervu. Árið 1927 byrjaði Jónas formennsku á Skógafossi og var með hann í 9 vertíðir. Eftir það var hann með fleiri báta, meðal annars Skíðblaðni og Gulltopp. Eftir að Jónas lét af sjómennsku gerðist hann húsvörður við Gagnfræðaskóla Vestmannaeyja.


Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.