„Emerentsíana Ásgeirsdóttir (Tómasarbæ)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Emerentíana Ásgeirsdóttir''' húsfreyja í Tómasarbæ 1703 fæddist 1643, á lífi 1704.<br> Emerentíana var húsfreyja í Tómasarbæ 1703 og skráð einn á...)
 
m (Verndaði „Emerentsíana Ásgeirsdóttir (Tómasarbæ)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 13. júlí 2014 kl. 19:03

Emerentíana Ásgeirsdóttir húsfreyja í Tómasarbæ 1703 fæddist 1643, á lífi 1704.
Emerentíana var húsfreyja í Tómasarbæ 1703 og skráð einn ábúenda Ofanleitis 1704. Má ætla, að Tómasarbær hafi verið ein af hjáleigum Ofanleitis. Heimilismenn hennar voru 4 árið 1704.

Maður Emerentíönu var Jón Þorsteinsson bóndi í Tómasarbæ 1703, f. 1645, líklega látinn fyrir samantekt Jarðabókarinnar í maí 1704.
Vinnumaður hjá þeim Jóni 1703 var Dagstyggur Guðmundsson, síðar í Hólshúsi, og vinnukona var Helga Brynjólfsdóttir 18 ára.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns. Hið íslenska fræðafélag í Kaupmannahöfn 1913-1917.
  • Manntal 1703.