Dagstyggur Guðmundsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Dagstyggur Guðmundsson í Hólshúsi fæddist 1678.
Hann var vinnumaður í Tómasarbæ í Eyjum 1703 hjá Jóni Þorsteinssyni og Emerentsíönu Ásgeirsdóttur húsfreyju.
Á bændatali, sem gert var af Sigurði Stefánssyni sýslumanni 1735, var Dagstyggur „biggjande“ í „Hoolhuss“.

Börn Dagstyggs hér:
1. Una Dagstyggsdóttir húsfreyja, f. 1713, d. 2. janúar 1789, þá ekkja í Svaðkoti.
2. Ögmundur Dagstyggsson bóndi í Voðmúlastaða-Suðurhjáleigu (nú Bólstaður), f. 1724, líklega í Eyjum, d. 27. september 1805 í Syðstu-Voðmúlastaðahjáleigu í A-Landeyjum.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Upp á Vestmannaeyja þingstaðar bæja-, innbyggjara- og bændanöfn. Sigurður Stefánsson sýslumaður 1735. Handrit í Þjóðskjalasafni.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.