Vigfús Einarsson (Miðhúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Vigfús Einarsson bóndi á Miðhúsum fæddist 17. júlí 1838 á Loftsölum í Mýrdal, lést 9. október 1916 í Utah.
Foreldrar hans voru Einar Jónsson bóndi á Loftsölum í Mýrdal, f. 1790 í Vindási í Hvolhreppi í Rang., d. 3. júní 1866 í Hryggjum í Mýrdal, og kona hans Kristín Árnadóttir húsfreyja, f. 10. september 1815 í Hrífunesi í Skaftártungu, var á lífi 1873.

Systir Vigfúsar var Kristín Einarsdóttir vinnukona, f. 6. nóvember 1855, d. 26. október 1891 í Utah.

Vigfús ólst upp í Mýrdal. Hann fór til Eyja 1860, var þar vinnumaður á Miðhúsum það ár. Varð hann síðan bóndi þar.
Hann fór til Utah 1888 og vann þar daglaunavinnu. Guðrún kona hans kom þangað árið eftir.
Vigfús dó úr berklum 1916.

I. Barnsmóðir Vigfúsar var Margrét Sverrisdóttir, þá á Miðhúsum, f. 6. maí 1832.
Barn þeirra var
1. Jóhann Vigfússon, f. 27. júlí 1862, d. 26. ágúst 1862 „af almennri barnaveiki“.

II. Kona Vigfúsar, (7. október 1864), var Guðrún Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 1834 í Fljótshlíð.
Hún fór til Utah 1889.
Börn Vigfúsar og Guðrúnar:
2. Guðlaugur Vigfússon sjávarbóndi á Vilborgarstöðum, f. 18. ágúst 1864, d. 4. maí 1942.
3. Sesselja Kristín Vigfúsdóttir, f. 1867. Hún fór til Utah 1891 frá Mandal. Maður hennar vestra var Árni Helgason frá Kornhól.
4. Einar Vigfússon, f. 23. febrúar 1870, d. 2. mars 1870 úr ginklofa.
5. Einar Vigfússon,, f. 1. apríl 1872. Hann var vinnumaður í Garðinum 1890, fór til Utah 1892.
6. Árni Vigfússon, f. 11. júlí 1875. Hann fór til Utah 1887 frá Miðhúsum.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.