Vigdís Jónsdóttir (Vilborgarstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Vigdís Jónsdóttir.

Vigdís Jónsdóttir húsfreyja á Vilborgarstöðum, síðar í Utah og Alberta í Vesturheimi, fæddist 10. júní 1845, d. 28. október 1925.
Foreldrar hennar voru Jón Sigurðsson sjómaður á Vilborgarstöðum, f. 1802, d. 13. febrúar 1852, og kona hans Sigríður Eiríksdóttir húsfreyja, f. 1815, d. 24. nóvember 1890.

Vigdís var með foreldrum sínum á Vilborgarstöðum 1845 og 1850, með móður sinni, Jóni Jónssyni stjúpa sínum og Elínu og Sigurði Jónsbörnum, hálfsystkinum sínum á Vilborgarstöðum 1860.
Hún eignaðist Jóhönnu Sigríði með Árna skálda 1864, en hann lést á sama ári.
Hún var gift húsfreyja á Vilborgarstöðum 1870 með Árna manni sínum og börnum þeirra Ingveldi þriggja ára og Árna á fyrsta ári, og Jóhönnu Sigríði Árnadóttur, dóttur hennar 6 ára. Þar var einnig Sigríður Eiríksdóttir móðir hennar 56 ára.
Árni drukknaði 1874 og í lok ársins var hún vinnukona í Vanangri, 1875 vinnukona í Helgahjalli með Hildi hjá sér 1875. Hún var síðan vinnukona í Eyjum.
Vigdís fór til Vesturheims frá Frydendal 1880 ásamt Hildi Árnadóttur, dóttur sinni 6 ára.
Hún varð húsfreyja í Utah og síðar í Alberta í Kanada.

I. Vigdís átti barn með Árna Níelssyni frá Hólmahjáleigu í A-Landeyjum, vinnumanni á Löndum, f. 18. júní 1842, d. 11. desember 1864:
1. Jóhanna Sigríður Árnadóttir, f. 9. júlí 1864, d. 7. febrúar 1938. Hún fór til Utah 1883 frá Fagurlyst. Hún var þrígift og eignaðist fjölda barna.

II. maður hennar, (26. október 1866), Árni Árnason sjávarbóndi á Vilborgarstöðum, f. 6. ágúst 1843, drukknaði af Gauki 13. mars 1874.
Börn þeirra Vigdísar:
2. Ingveldur Árnadóttir, f. 28. júní 1867, d. 2. mars 1948 í Vesturheimi.
3. Árni Árnason sjómaður á Grund, f. 15. júlí 1870, d. 8. janúar 1924.
4. Hildur Árnadóttir, f. 9. júlí 1873, d. 25. júní 1918. Fór með móður sinni til Utah 1880.

III. maður hennar var Jón Eyvindsson trésmiður og bæjarstjóri í Taber í Alberta í Kanada, f. 14. júní 1845, d. 3. október 1917. Hann var mormónatrúboði. Foreldrar hans voru Eyvindur Jónsson þá bóndi í Hallgeirseyjarhjáleigu í A-Landeyjum, en fyrrum í Brekkuhúsi, og kona hans, (skildu), Valgerður Björnsdóttir.
Barn þeirra var
5. Eyvindur Jónsson, nefndist Evan Evanson, f. 18. apríl 1883 í Spanish Fork í Utah.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.