Tómas Jóhannesson (Ingólfshvoli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Tómas Jóhannesson.

Tómas Jóhannesson frá Neskaupstað, sjómaður, stýrimaður, vigtarmaður fæddist 24. nóvember 1911 og lést 10. febrúar 1998.
Foreldrar hans voru Jóhannes Þorleifsson bóndi á Hrjóti í Hjaltastaðaþinghá, S.-Múl., f. 26. júlí 1856, d. 1. júní 1938, og Ingveldur Árnadóttir frá Klifi í Viðfirði, S.-Múl., f. 22. júní 1872, d. 28. mars 1950.

Tómas var með foreldrum sínum.
Hann tók hið minna skipstjórnarpróf árið 1932 í Neskaupstað, lærði í Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1942-1943.
Hann stundaði sjómennsku, var skipstjóri frá 1936 á ýmsum skipum til 1966. Tómas var síðar vigtarmaður við Reykjavíkurhöfn.
Þau Birna giftu sig 1940, eignuðust eitt barn og eitt kjörbarn. Þau bjuggu á Ingólfshvoli við Landagötu 3a, á Akranesi, Reykjavík og Seltjarnarnesi.
Tómas lést 1998 og Birna 2007.

I. Kona Tómasar, (28. júní 1940), var Birna Björnsdóttir frá Neskaupstað, húsfreyja, f. 30. janúar 1913, d. 28. febrúar 2007.
Börn þeirra:
1. Hilmar Gísli Tómasson sjómaður, skipstjóri, f. 16. júní 1932 á Ingólfshvoli, d. 28. júní 1962.
2. Kjörbarn: Inga Elísabet Tómasdóttir, f. 25. maí 1949. Sambúðarmaður Eiríkur Arnþórsson.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Morgunblaðið 18. febrúar 1998. Minning Tómasar.
  • Prestþjónustubækur.
  • Skipstjóra- og stýrimannatal. Guðmundur Jakobsson. Ægisútgáfan 1979.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.