Sveinn Jónsson (Þorlaugargerði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sveinn Jónsson frá Þorlaugargerði fæddist 23. september 1815 á Grjótá í Fljótshlíð og hrapaði til bana úr Hamrinum 28. júní 1829.
Foreldrar hans voru Sigþrúður Jónsdóttir, síðar húsfreyja í Kastala og Þorlaugargerði, f. 1785, d. 8. mars 1860, og Jón Pétursson, þá vinnumaður á Butru í Fljótshlíð.

Hann var með móður sinni og fósturföður í Kastala 1821-1828 og í Þorlaugargerði 1828-29.
Móðurbróðir hans Jón Jónsson bóndi í Norðurgarði hrapaði úr Stórhöfða 21. ágúst 1851 og síðari maður móður hans Sigurður Sigurðsson bóndi í Þorlaugargerði hrapaði úr Stórhöfða 9. september 1844.
Þriðji maður móður hans, Ólafur Ólafsson bóndi, fórst við Landeyjasand 1850.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.