Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1984/„Hugsaði margt á sundinu“

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
„Hugsaði margt á sundinu“



Viðtal við Guðlaug Friðþórsson um björgunarafrek hans


Guðlaugur með afrekshornið

„Ég var að velta því fyrir mér daginn eftir að ég náði landi, hvort þetta væri ekki draumur, hvort það væri virkilega satt að ég hefði bjargast. Þetta var ekki ósvipuð tilfinning og í Eyjagosinu þegar ég var í Reykjavík og var að velta því fyrir mér hvort eldgosið í mínum bæ væri staðreynd, hvort það væri ekki draumur sem ég vaknaði af,“ sagði Guðlaugur Friðþórsson í upphafi samtals okkar á sjúkrahúsinu í Vestmannaeyjum um hinn hörmulega atburð þegar fjórir ungir sjómenn fórust með Hellisey Ve, 11. mars sl., en Guðlaugur náði að synda um 6 km vegalengd til Heimaeyjar, djúpt af hafi í myrkri og kulda, einstakt afrek í heiminum.

„Maður reyndi bara að halda í sér lífi þegar skipið fór yfir um, það skeði svo snöggt, fyrst á hliðina í einu vetfangi og síðan á hvolf. Þegar skipið fór á hliðina náði ég taki á styrkingu í mastrinu og hafði hugsað mér að hlaupa eftir lunningunni að björgunarbátunum, en það var enginn tími til þess, skipið fór þegar á hvolf og ég sá Hjört skipstjóra koma út um glugga á brúnni og skipsfélagar okkar aðrir lentu í sjónum. Við reyndum strax að komast á kjöl, en það var svo sem lítil von í því, svarta myrkur, fjarri landi, skipið að sökkva og enginn gúmmíbjörgunarbátur til taks. Það var vonlaust að kafa eftir gúmmíbjörgunarbátunum, líklega um 6 metrar niður undir bátinn og svartamyrkur niðri.
Hjörtur skipstjóri og Pétur vélstjóri komust skjótt á kjöl, en tveir félagar okkar náðu því ekki, en um stund vorum við allir við skipið þar sem það maraði á hvolfi. Félagar okkar tveir hurfu frá bátnum án þess að við gætum nokkuð gert, björgunarbátslausir.

„Töluðum mikið saman á kili“
Við töluðum mikið saman á kili og ég sagði sisvona: „Jæja, þetta þurfti þá að enda svona.“ Maður heldur altaf að einhver annar lendi í því, einhver annar maður, einhver annar bátur. Svona er það í landi líka, en svo allt í einu er stundin runnin upp.
Við sátum frammi á kili og var skipið þá mikið til komið í kaf að aftan. Mér verður þá að orði: „Ef Guð er til ætti hann að hjálpa manni núna, nú þarf maður á því að halda.“ Undarlegt er þetta og oft hefur maður efast um það að Guð væri til og jafnvel hæðst að því á ákveðnum aldri eins og gengur.
Hjörtur skipstjóri sagði þá að við skyldum fara með Faðir vor og við gerðum það þrír saman og reyndum þannig að hughreysta hver annan. Hirti var mjög kalt því hann var sokkalaus, hafði misst skó og sokka af sér, og ég lánaði honum stígvélin mín, því ég var sjálfur í ullarsokkum. Það var kalt þarna á kili. Við gerðum okkur strax grein fyrir því að enginn myndi koma okkur til aðstoðar og því ræddum við þann möguleika að kafa niður á björgunarbátana. Hjörtur hafði á orði að hann væri betri sundmaður en ég og ég játti því, hann var vanur kafari og ég hafði ekki farið í sundlaug síðan ég var í Stýrimannaskólanum 1981. Hann reyndi að kafa en það var ekki mögulegt og hann kom aftur á kjöl. Það var enginn sleppibúnaður á björgunarbátunum og því enginn sjálfvirkur sleppibúnaður eins og er á Sigmundsbúnaðinum. Við ákváðum þarna saman þrír á kili að ef svo ótrúlega vildi til að einhver okkar lifði af, þá skyldum við láta það koma fram að það eina sem hefði getað bjargað okkur væri sjálfvirkur sjósleppibúnaður Sigmunds. Ef þessi sjálfvirki búnaður hefði verið til staðar hefði gúmmíbjörgunarbátur að öllum líkindum verið við skipshlið innan við einni mínútu eftir að skipinu hvolfdi.
Stöðugt seig skipið og loks var aðeins stafnkjölurinn upp úr. Við sátum þar þétt saman, ég fremstur, en Pétur var á milli okkar Hjartar. Allt í einu reis báturinn nær lóðrétt. Við báðum þá saman og töluðum hughreystandi hver við annan.
Það hafði ekki hvarflað að mér að reyna að synda til lands, en þegar Hjörtur sagðist ætla að freista þess, sagðist ég einnig ætla að gera það. Skyndilega datt báturinn undan okkur og við vorum aftur í sjónum. Við höfðum ákveðið að reyna sund til lands án þess að fylgjast að og án þess að reyna að hjálpa hver öðrum, töldum það vonlaust. Við sáum vitaljósið á Stórhöfða og tókum þrír stefnuna þangað. Fljótlega vorum við Hjörtur tveir einir og kölluðumst á, en síðan hætti ég að fá svar og hætti þá að kalla.

Guðlaugur í faðmi fjölskyldunnar, t.f.v.: Margrét, Friðþór Guðlaugsson og Sigurhanna.

„Hugsaði margt á sundinu.“
Ég hugsaði svo margt á sundinu til lands, hvað maður hefur gert og hvað maður átti eftir að gera. Ég hef til dæmis verið að velta því fyrir mér ásamt félögum mínum að skreppa til New York og við höfðum stundum haft á orði að við gætum ekki verið þekktir fyrir að fara ekki til Nýju Jórvíkur áður en við dræpumst og þetta fór ég að hugsa um á leiðinni til Heimeyjar, fannst alveg ótækt að geta ekki látið þennan draum rætast. Ég fór líka að hugsa um það að ég skulda hér og þar, smávegis, eins og gengur, og mér þótti mikið slæmt að stefna í dauðann án þess að geta gert upp. Ég á mótorhjól og er nýbúinn að panta í það frá Bretlandi og ég var til dæmis að velta því fyrir mér hvort karlinn sem ég pantaði hjá yrði nú ekki snarvitlaus ef pöntunin yrði ekki sótt. Mér fannst líka óþægilegt að hugsa til þess að þeir sem ég skuldaði kynnu ekki við að rukka foreldra mína. Þannig var ég allan tímann að velta hlutunum fyrir mér, reyna að halda hugsuninni gangandi um leið og það tosaðist á sundinu.
Stundum barði ég saman löppunum til þess að finna að þær væru með í dæminu og ég fann það svolítið þegar þær smullu saman. Ég synti í sjógallanum fyrstu míluna, en innan undir var ég aðeins í gallabuxum, skyrtu og peysu. Gallinn var alltaf að stífna meira og meira og þegar ég skipti um frá bringusundi á baksund og öfugt, komu strengir í mig og ég þurfti alltaf að juða upp gallann. Þá var ég að velta því fyrir mér hvort mér yrði kalt ef ég færi úr gallanum, en auðvitað hefur hann ekkert hlíft gegn kuldanum. Oft hóstaði ég á sundinu og reyndi að æla, því ég hafði drukkið sjó. Einu sinni stoppaði ég á sundinu og stakk puttanum upp í mig til þess að æla. Ég synti alltaf með höfuðið upp úr og þess vegna fékk ég fljótlega hálsríg, en ég gat aldrei synt lengi á bakinu vegna þess að þá kólnaði mér svo á höfðinu. Þegar ég hafði synt um mílu sá ég bát koma siglandi og synti allt hvað af tók og var þá ekkert að hugsa um að halda höfðinu upp úr. Þegar báturinn fór framhjá voru um 100 metrar í hann og ég öskraði af öllum lífs og sálar kröftum, veifaði og buslaði, en báturinn hvarf án þess að nokkur tæki eftir mér. Þá greip mig svolítið vonleysi, þegar ég sá á eftir bátnum, en svo sá ég að úr því að hjálpin bærist ekki yrði ég að bjarga mér sjálfur og við það styrktist ég aftur og tók stefnuna á Heimaey sem grillti í fjarri í myrkrinu. Þá fór ég úr sjógallanum, en synti spöl án þess að taka eftir að buxurnar þvældust á fótunum. Stundum þegar ég synti baksund, böglaði ég saman fingurna og blés í þá.
Á landleiðinni sá ég líka alltaf ljóskastarana austur á nýja Hrauni, og stefndi á þá og Höfðavitann. Ég sá einnig Álsey undan Stórhöfða og Elliðaey austan við Bjarnarey, en þegar fór að saxast á Álsey sá ég að ég var að mjakast og það hleypti í mig dug og von. Þegar Elliðaey var horfin undir Bjarnarey taldi ég eina mílu eftir í land.

Skyndilega í brimgarðinum
Það var skrítið að á leiðinni í land var ég farinn að hugsa um það hvaða leið ég myndi fara í bæinn. Fyrst hugsaði ég um að reyna landtöku í brimurðinni, en það eru oft mjög hættulegar öldur, svo ég vék frá því og ákvað að reyna landtöku um það bil kílómeter norðar. Ég var þó aldrei alveg klár á því hvar ég var við Heimaey vegna myrkurs fyrr en ég var kominn mjög nálægt og Helgafellið hvarf bak við bergið og skyndilega var ég kominn inn í brimgarðinn við austurströndina á Heimaey. Ég dansaði eins og tuðra í brimgarðinum og leist þá ekkert á blikuna. Ég gat ekki séð fjöruna, eða hamarinn vegna myrkurs og brimlöðurs og ákvað því að synda aftur frá landi út í gegn um brimgarðinn. Þar dólaði ég nokkra stund og velti því fyrir mér hvað væri nú til ráða, en komst að þeirri niðurstöðu að úr því að mér hefði verið sleppt þetta langt, hlyti ég að komast síðasta spölinn til lands klakklaust.

Það undarlega var að ég var aldrei hræddur þessa nótt. Ég hafði á tilfinningunni að ég myndi deyja. Ég fór tvisvar með Faðir vor á leiðinni í land, en það var satt að segja æði fjölbreytt sem ég reyndi að gera til þess að halda hugsuninni gangandi. Ég talaði við múkkann og bað hann fyrir skilaboð til lands, bað hann að láta vita af mér. „Þú ert ekki mikið að hjálpa mér,“ kallaði ég til eins múkkans, en þeir fylgdu mér eftir langleiðina „til lands og það var ágætt. Ég velti því fyrir mér hvort það myndi ef til vill vilja til að höfrungur kæmi mér til hjálpar, hafði heyrt um slíkt erlendis frá. Ég held að það hafi hjálpað mér mjög að ég var rólegur allan tímann, var ekki hræddur við að deyja, en hins vegar kveið ég því að drukkna, hafði sopið sjó og fannst það óþægilegt. Alltaf þegar ég synti bringusund sá ég land, þá vitaljósið og eyjarnar, en þegar ég synti baksundið miðaði ég stefnuna við skæra stjörnu á himni. Það var stjörnubjart lengi vel, en síðan fór að verða skýjað og stjörnurnar hurfu að mestu í skýin, en stjarnan mín hvarf aldrei. Ég hafði hana beint frá andlitinu á baksundinu og það brást aldrei að stefnan var rétt þegar ég fór á bringuna. Einu sinni stóð ég mig að því að synda frá landi. Þá hafði ég synt með lokuð augu um stund til þess að hvíla mig. Skömmu áður hafði ég snúið mér á sundinu, en ég var fljótur að snúa frá stefnunni á Dyrhólaey og til Heimaeyjar. Á tímabili sagði ég sjálfum mér brandara á leiðinni, en ég kann nokkuð af þeim. Það stytti tímann, maður varð að gera eitthvað. Ég var þá búinn að vera svo dofinn í líkamanum að það var eins og hann flyti með af gömlum vana, sérstaklega var ég dofinn á fótunum. Ég kappkostaði að hugsa allan tímann og það var margt ótrúlegt sem kom fram í hugann, bæði það sem maður hefur heyrt gott og illt. Svo reyndi ég að blístra lög á baksundinu, en það hefur ugglaust verið erfitt að dansa eftir þeim takti.

Ákvað að láta kylfu ráða kasti
Eftir nokkrar vangaveltur í brimgarðinum við hamra Heimaeyjar ákvað ég að láta kylfu ráða kasti úr því sem komið var og forlögin höfðu verið mér svona hliðholl. Ég fór því á baksund og synti aftur inn í brimgarðinn, á fullri ferð, án þess að vita hvort framundan væri sandfjara grýtt urð eða hamraveggur. Þegar ég taldi mig vera nálægt landi, því brimniðurinn segir manni nokk hve nærri landi maður er, þá sneri ég mér við á bringuna og var þá við stóran stein sem var svona 5-10 metra frá stórgrýttri fjörunni. Ég náði taki á klettinum og hélt mér þar meðan fjaraði út en næsta alda henti mér yfir klettinn og skolaði mér í urðina. Þar komst ég upp á syllu sem ég skreið upp á því ég gat ekki staðið. Ég hugsaði með mér að ég væri með sjóriðu og það fannst mér skammarlegt af sjómanni að vera. Ég sat nokkrar mínútur á syllunni og skorðaði mig af, því það flæddi upp á sylluna í fyllingum. Ég gerði mér ekki grein fyrir því að lappirnar voru búnar, en síðan komst ég, milli laga, fyrir bergsnös í fjörunni og upp á þurrt, loksins.

Fann ekki fyrir sjálfum mér
Þá fór ég að velta því fyrir mér hvort ég ætti að leggja mig niður stundarkorn, en ég var hræddur um það að það myndi alveg slokkna á mér ef ég sofnaði þarna, svo ég ákvað að halda áfram eftir stutta stund. Ég skreið fyrst, reyndi síðan að labba, en skjögraði til allra átta og gat satt að segja ekki staðið á fótunum af neinu viti. Ég taldi mér borgið þegar ég var kominn á land, en samt var það ef til vill erfiðara að fara landleiðina um hraunið, berfættur og svo dofinn að maður fann ekki fyrir sjálfum sér þótt maður kæmi við sig. Líklega hef ég verið um það bil 5 klukkutíma á sundi, eftir eina klukkustund á kili, og líklega hef ég verið nær þrjár klukkustundir að komast í bæinn. Á miðri leið rakst ég á baðkar, sem notað er til að brynna ám. Með bylmingshöggum svo hönd mín bólgnaði náði ég að brjóta þumlungs þykkan ís og gatið sem myndaðist passaði nákvæmlega til þess að ég gæti stungið hausnum ofan í vatnið og svolgrað. Það hressti mig mikið, en samt var ég svo móður og þungur á göngunni að ég geri mér varla grein fyrir hvernig ég liðaðist upp hlíðina og yfir hraunið. Þegar ég kom að Helgafellsgryfjunni, að lítilli brekku á veginum, var ég að hugsa um að fara heldur suður í Flugstöð í stað þess að leggja í brekkuna, svo miklaði ég hana fyrir mér, en ég lagði þó í hana og þegar ég reyndi að labba utan vegar í grasinu gat ég það ekki vegna þess að ég hélt engu jafnvægi í annars tiltölulega sléttu graslendi.
Þegar ég komst upp milli Fellanna og ljósin í bænum blöstu við, leit ég einhverja stórkostlegustu sýn í lífi mínu og mér óx ásmegin og greikkaði sporið að fyrsta húsinu sem ljós var í. Þar barði ég dyra og bað um hjálp, en síðan rennur flest út í móðu sem síðar gerðist á leiðinni til sjúkrahússins. Ég vil þakka öllum sem hafa hjálpað mér og sérstaklega starfsfólki sjúkrahússins sem er alveg sérstakt og vil ég biðja fyrir minar dýpstu samúðarkveðjur til allra aðstandenda skipsfélaga minna. Það er sárt að sakna góðra félaga og það var harður skóli að lifa með þeim þeirra síðustu stundir þessa lífs.
Ég hét því meðan á þessu stóð, fyrst á kili, að fara aldrei til sjós oftar, ef mér ætti að verða lífs auðið. Svo ítrekaði ég þetta heit á sundinu, en eitthvað er ég nú farinn að guggna á því. Maður sér bara til úr því að manni er ætlað að lifa áfram. En ég hef nú fengið það sem var efst á óskalistanum í vangaveltunum á sundinu, heitt bað og heitt rúm. Umfram allt vil ég þó þakka almættinu í auðmýkt þótt það sé nú ekki manns sterkasta hlið.

Árni Johnsen

Guðlaugi bárust margar heillaóskir, bréf og skeyti. Til gamans birtum við hér texta úr fjórum þeirra.

Við dáumst að þér og þú átt virðingu okkar, þú ert sönn íslensk hetja.
Starfsmenn Loftferðaeftirlits
Flugmálastjórnar, Reykjavíkurflugvelli.



,,Einstakt afrek, meira en á heimsmælikvarða.

Hvernig fórst þú að þessu?“

Sigurður Sigurðsson,
kokkur á Snorra Sturlusyni.



„Lofum Guð fyrir lífsbjörg þína og áhrifaríkan vitnisburð um trúartraust á örlagastundu. Guð vaki yfir þér og fjölskyldu þinni. Guð huggi syrgjendur og blessi minningu þeirra sem á undan eru farnir yfir djúpið mikla.“
Sólveig Ásgeirsdóttir
og Pétur Sigurgeirsson.“

„Ég sendi þér og fjölskyldu þinni hamingju - og heillaóskir vegna einstæðrar björgunar þinnar og lífgjafar. Afrek þitt er einstakt og mun um aldur verða skráð í sögu íslenskrar sjómannastéttar.

Hið mikla sundafrek og sálarró þín verður um ókomna tíð sjómönnum Íslands hvati og fyrirheit á hœttustundum. Okkur sem eigum að sjá um menntun sjómanna er afrek þitt viti sem lýsir.
Ég votta þér innilega samúð vegna mannrauna þinna og fráfalls skipsfélaga.“
Lifðu heill.
Guðjón Ármann Eyjólfsson

skólastjóri Stýrimannaskólans í Reykjavík.