Sigurveig Samsonardóttir (Gjábakka)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sigurveig Samsonardóttir húsfreyja fæddist 26. mars 1854 í Svalbarðssókn í Norður-Þingeyjarsýslu og lést 7. ágúst 1930.
Foreldrar hennar voru Samson Björnsson bóndi á Hvappi og Hávarðsstöðum í N-Þing., f. 17. ágúst 1815 á Orrastöðum á Ásum í A-Húnavatnssýslu, d. 1. mars 1893, og kona hans Kristlaug Þorsteinsdóttir húsfreyja frá Hallgilsstöðum í Sauðanessókn í N-Þing., f. 1823 í Sauðanessókn þar, d. 26. júní 1889.

Sigurveig var með foreldrum sínum á Hávarðsstöðum 1855.
Hún var vinnukona á Þórarinsstöðum í Seyðisfirði 1880.
1890 bjó hún með Þorkeli og 3 börnum sínum í Garðhúsabæ í Reykjavík, tvö eldri börnin höfðu fæðst á Seyðisfirði, en Eirikka Guðrún yngsta barnið tveggja ára hafði fæðst í Reykjavík.
1901 bjuggu hjónin í Sauðagerði í Reykjavík með Kristmanni, Friðbirni, Aðalbjörgu Jónínu Dóróteu og Dagmar, en Eirikka var fjarri. Hún var tökubarn í Pálshúsi .
Hjónin fluttust til Eyja 1905 með Eirikku Guðrúnu, Aðalbjörgu og Dagmar. Þau voru húsfólk í Péturshúsi, (síðar Stafholt), 1906 með Dagmar dóttur sína hjá sér, en Aðalbjörg var tökubarn í Klöpp. Friðbjörn og Eirikka voru vinnufólk í Steinholti hjá Kristmanni bróður sínum.
1910 voru þau Þorkell húsfólk á Eystri-Gjábakka með Dagmar hjá sér, hann sjómaður. Þau voru þar í sambýli við Friðbjörn og fjölskyldu hans.
Þorkell lést 1920 og Sigurveig bjó í Steinholti í sambýli við Kristmann og fjölskyldu hans.
Hún lést 1930.

Maður Sigurveigar, (1883), var Þorkell Eiríksson sjómaður, f. 16. febrúar 1853, d. 18. apríl 1920.
Börn þeirra hér:
1. Friðbjörn Þorkelsson, f. 25. ágúst 1885 á Seyðisfirði, d. 4. maí 1957.
2. Kristmann Agnar Þorkelsson yfirfiskimatsmaður, f. 23. júlí 1884 á Seyðisfirði, d. 22. janúar 1972.
3. Eirikka Guðrún Þorkelsdóttir vinnukona í Steinholti 1906, húsfreyja á Eskifirði, f. 14. júlí 1888 í Reykjavík, d. 3. desember 1970.
4. Aðalbjörg Jónína Dóróthea Þorkelsdóttir vinnukona á Hallgilsstöðum 1910, f. 5. janúar 1892, d. 5. nóvember 1965.
5. Dagmar Þorkelsdóttir húsfreyja, síðast í Hafnarfirði, f. 25. september 1897 í Reykjavík, d. 22. febrúar 1983.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.