Sigurður Jónsson (París)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sigurður Jónsson vinnumaður fæddist 1. september 1822 á Heiði á Síðu og lést 13. mars 1867 í Norðurgarði.
Foreldrar hans voru Jón Þorkelsson bóndi, síðast í Efri-Mörk á Síðu, f. 1782, d. 31. maí 1843 í Efri-Mörk, og kona hans Gróa Sigurðardóttir húsfreyja, f. 1788 á Efri-Steinsmýri í Meðallandi, d. 14. nóvember 1880 í Ytra-Hrauni í Landbroti.

Sigurður var með foreldrum sínum til 1846, með móður sinni í Þykkvabæ 1846-1850. Þá fór hann austur á Djúpavog.
Hann fluttist að París 1856, var „sinn eiginn maður“ á Kirkjubæ í lok þess árs, „sjálfs sín“ þar 1857-1858, var fyrirvinna hjá Valgerði Sigurðardóttur í Háagarði 1859, vinnumaður þar 1860, í Kornhól 1862, í Fagurlyst 1863-1864, í Norðurgarði frá 1865- dd. 1867. Hann dó „úr innanmeinum“.
Sigurður var ókvæntur og barnlaus í Eyjum.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.