Salómon Bárðarson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Salómon Bárðarson.

Salómon Bárðarson frá Norður- Móeiðarhvolshjáleigu í Oddasókn, Rang., fæddist 7. maí 1889 og lést 8. febrúar 1966.
Foreldrar hans voru Bárður Eyjólfsson bóndi, f. 15. ágúst 1849, d. 26. júní 1895, og kona hans Guðbjörg Jónsdóttir húsfreyja, f. 4. ágúst 1854, d. 10. maí 1916.

Salómon var með foreldrum sínum, en faðir hans lést, er Salómon var sex ára. Hann var 12 ára á Árgilsstöðum í Breiðabólsstaðarsókn 1901, sláttumaður og skepnuhirðir þar 1910, bóndi í Giljum í Hvolhreppi 1920, bjó síðar í Landlyst í Eyjum og síðast í Fellsmúla 10 í Rvk.
Þau Þorvaldína giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu í Landlyst.
Salómon lést 1966 og Þorvaldína 1981.

I. Kona Salómons var Þorvaldína Elín Þorleifsdóttir frá Miðhúsum í Hvolhreppi, Rang., húsfreyja, f. 17. apríl 1895, d. 10. október 1981.
Börn þeirra:
1. Kristín Salómonsdóttir húsfreyja í Rvk, f. 28. októbver 1915 á Giljum í Hvolhreppi, d. 6. mars 1999. Fyrri maður hennar Óskar Magnússon. Síðari maður hennar Hallgrímur Pétursson.
2. Bragi Salómonsson, f. 28. desember 1924 í Landlyst, d. 11. ágúst 2006. Kona hans Pálína Pálsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.