Sólrún Ingvarsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Sólrún Ingvarsdóttir.

Sólrún Ingvarsdóttir frá Hellnahóli u. Eyjafjöllum, húsfreyja fæddist 9. október 1891 og lést 21. ágúst 1974.
Faðir hennar var Ingvar bóndi á Hellnahóli undir Eyjafjöllum, f. 12. október 1864, d. 1910, skömmu eftir flutning til Eyja, jarðsettur í Eyjum, Einarsson vinnumanns í Snotru í Landeyjum 1860, vinnumanns í Kirkjuvogi í Höfnum, Gull. 1870, f. 1843, d. 7. ágúst 1877, Sigurðssonar bónda í Voðmúlastaða-Miðhjáleigu í A-Landeyjum 1817-1838, f. 20. mars 1792 í Efrihól undir Eyjafjöllum, d. 14. júní 1864 á Núpi þar, Sighvatssonar, og síðari konu Sigurðar, (30. október 1828, skildu), Guðrúnar húsfreyju, f. 1807, d. 18. janúar 1874, Guðmundsdóttur.
Sigurður og Guðrún voru einnig foreldrar Sighhvats á Vilborgarstöðum.
Móðir Ingvars á Hellnahóli og barnsmóðir Einars var Sólrún, síðar húsfreyja á Hellnahóli, f. 7. september 1839, d. 5. maí 1921, Þorvaldsdóttir (Sólrún varð síðari kona Þórðar bónda á Hellnahóli, bróður Einars barnsföður síns); Þorvaldur var bóndi á Krossi II (Krosshjáleigu) í A-Landeyjum 1834-1861, f. 1801 í Skíðbakkahjáleigu, d. 30. maí 1871 í Tjarnarkoti þar, Magnússon, en kona Þorvaldar (15. október 1833) og móðir Sólrúnar var Ingibjörg húsfreyja, f. 11. maí 1812, d. 17. maí 1870, Bjarnadóttir.

Móðir Sólrúnar og kona (1890) Ingvars á Hellnahóli var Ástríður húsfreyja, bjó í Víðidal 1930, f. 25. júlí 1859, d. 10. júlí 1937, Sigurðardóttir bónda á Borgareyrum og Hvammi undir Eyjafjöllum, f. 9. mars 1825, d. 12. júlí 1887, Sigurðssonar bónda í Voðmúlastaða-Miðhjáleigu 1817-1838, f. 1792, d. 1864 (sami og faðir Einars föður Ingvars), Sighvatssonar, og fyrri konu Sigurðar (1. október 1814), Ragnhildar húsfreyju, f. 21. júlí 1794, d. 23. janúar 1828, Árnadóttur.
Móðir Ástríðar og fyrri kona Sigurðar á Borgareyrum var Dýrfinna húsfreyja á Borgareyrum og í Hvammi, f. 13. ágúst 1830 í Krýsuvíkursókn, d. 2. maí 1878, Kolbeinsdóttir frá Litlakoti í Hvalsnessókn, bónda í Suðurkoti við Krýsuvík, en vinnumaður í Ólafshúsum 1855, f. 20. júlí 1795, d. 8. janúar 1860, Jónssonar, og konu Kolbeins, Vigdísar húsfreyju í Suðurkoti 1835, f. 16. júlí 1788, d. 29. ágúst 1839, Sigurðardóttur.

Börn Ingvars og Ástríðar í Eyjum voru:
1. Ágúst Sigurður Ingvarsson verkstjóri, f. 27. júní 1890, d. 25. nóvember 1963.
2. Sólrún Ingvarsdóttir húsfreyja, f. 9. okt. 1891, d. 21. ágúst 1974, gift Sveini Sigurhanssyni vélstjóra og múrara, f. 21. júní 1892, d. 6. desember 1963.
3. Einar Ingvarsson sjómaður, f. 9. okt. 1891, tvíburi við Sólrúnu, d. 18. maí 1968, kvæntur Guðrúnu Eyjólfsdóttur húsfreyju, f. 4. febr. 1898, d. 29. nóvember 1980.
4. Guðbjörg Ingvarsdóttir húsfreyja, f. 28. júní 1897, d. 2. september 1987, gift Sveinbirni Einarssyni trésmið, f. 12. júní 1890, d. 13. ágúst 1984.
5. Dýrfinna Ingvarsdóttir húsfreyja á Kirkjubæ, f. 7. júlí 1900, d. 1. desember 1986, gift Sigurði Gottskálkssyni frá Hraungerði í Eyjum, verkamanni og bónda á Kirkjubæ, f. 23. ágúst 1894, d. 5. apríl 1955.
6. Jóhanna Júlíana Ingvarsdóttir húsfreyja í Neskaupstað 1930, f. 13. okt. 1901, d. 2. nóvember 1937, gift Guðna Sveinssyni sjómanni á Norðfirði, f. 6. maí 1894, d. 15. nóvember 1975.
Sonur Ingvars var
7. Guðni Ingvarsson bryti, matsveinn, f. 17. júlí 1901, d. 5. október 1975.

Sólrún var með foreldrum sínum á Hellnahóli í æsku. Hún fluttist til Eyja 1909 með þeim og tveim systrum sínum, Guðbjörgu og Jóhönnu.
Hún var 18 ára með þeim í Bræðraborg 1909, hjú í Langa-Hvammi hjá Magnúsi Þórðarsyni og Margréti Bjarnadóttur bústýru hans 1910, fór ,,Austur“ undir Eyjafjöll 1911, kom aftur að Bræðraborg 1912, var þar vinnukona 1912, 1913.
Hún kom til Norðfjarðar úr Eyjum 1916, fæddi andvana stúlku þar 1917.
Þau Sveinn giftu sig 1919 og bjuggu á Túnsbergi. Þar fæddist Ágústa 1920. Þau voru í Sætúni við fæðingu Berents 1926 og Garðars 1933, á Sunnuhvoli 1934 við fæðingu Tryggva.
Sólrún og Sveinn bjuggu í Eystra-Stakkagerði 1940, í Garðinum um skeið, en byggðu húsið við Bakkasíg 11 á árunum 1953-1958 og bjuggu þar síðast.


ctr


Fjölskylda Sólrúnar og Sveins.
Aftari röð frá vinstri: Tryggvi, Garðar, Berent, Ágústa.

I. Barnsföður ekki getið.
1. Andvana súlka, f. 5. mars 1917 á Norðfirði.

II. Maður Sólrúnar, (23. desember 1919), var Sveinn Sigurhansson vélstjóri, múrari, f. 21. júní 1892, d. 6. desember 1963.
Börn þeirra:
2. Ágústa Sveinsdóttir verkstjóri, f. 24. febrúar 1920 á Túnsbergi, d. 13. september 2012.
3. Andvana stúlka, f. 20. mars 1925.
4. Berent Theodór Sveinsson loftskeytamaður, f. 21. ágúst 1926 í Sætúni, d. 29. júlí 2018.
5. Garðar Aðalsteinn Sveinsson rafvirkjameistari, f. 15. janúar 1933 í Sætúni, d. 9. janúar 2012.
6. Tryggvi Sveinsson stýrimaður, f. 20. júní 1934.

ctr


Sex af börnum hjónanna á Hellnahóli, Ingvars og Ástríðar.
Aftari röð frá vinstri: Sólrún, Guðbjörg, Dýrfinna, Jóhanna.
Fremri röð frá vinstri: Einar, Ágúst Sigurður.

Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.