Einar Ingvarsson (Hellnahóli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Einar Ingvarsson frá Hellnahóli u. Eyjafjöllum, sjómaður, verkamaður, starfsmaður Vestmannaeyjabæjar fæddist 10. október 1891 á Hellnahóli og lést 18. maí 1968.
Faðir hans var Ingvar bóndi á Hellnahóli undir Eyjafjöllum, f. 12. október 1864, d. 1910, skömmu eftir flutning til Eyja, jarðsettur í Eyjum, Einarsson vinnumanns í Snotru í Landeyjum 1860, vinnumanns í Kirkjuvogi í Höfnum, Gull. 1870, f. 1843, d. 7. ágúst 1877, Sigurðssonar bónda í Voðmúlastaða-Miðhjáleigu í A-Landeyjum 1817-1838, f. 20. mars 1792 í Efrihól undir Eyjafjöllum, d. 14. júní 1864 á Núpi þar, Sighvatssonar, og síðari konu Sigurðar, (30. október 1828, skildu), Guðrúnar húsfreyju, f. 1807, d. 18. janúar 1874, Guðmundsdóttur.
Sigurður og Guðrún voru einnig foreldrar Sighhvats á Vilborgarstöðum.
Móðir Ingvars á Hellnahóli og barnsmóðir Einars var Sólrún, síðar húsfreyja á Hellnahóli, f. 7. september 1839, d. 5. maí 1921, Þorvaldsdóttir (Sólrún varð síðari kona Þórðar bónda á Hellnahóli, bróður Einars barnsföður síns); Þorvaldur var bóndi á Krossi II (Krosshjáleigu) í A-Landeyjum 1834-1861, f. 1801 í Skíðbakkahjáleigu, d. 30. maí 1871 í Tjarnarkoti þar, Magnússon, en kona Þorvaldar (15. október 1833) og móðir Sólrúnar var Ingibjörg húsfreyja, f. 11. maí 1812, d. 17. maí 1870, Bjarnadóttir.

Móðir Einars og kona (1890) Ingvars á Hellnahóli var Ástríður húsfreyja, bjó í Víðidal 1930, f. 25. júlí 1859, d. 10. júlí 1937, Sigurðardóttir bónda á Borgareyrum og Hvammi undir Eyjafjöllum, f. 9. mars 1825, d. 12. júlí 1887, Sigurðssonar bónda í Voðmúlastaða-Miðhjáleigu 1817-1838, f. 1792, d. 1864 (sami og faðir Einars föður Ingvars), Sighvatssonar, og fyrri konu Sigurðar (1. október 1814), Ragnhildar húsfreyju, f. 21. júlí 1794, d. 23. janúar 1828, Árnadóttur.
Móðir Ástríðar og fyrri kona Sigurðar á Borgareyrum var Dýrfinna húsfreyja á Borgareyrum og í Hvammi, f. 13. ágúst 1830 í Krýsuvíkursókn, d. 2. maí 1878, Kolbeinsdóttir frá Litlakoti í Hvalsnessókn, bónda í Suðurkoti við Krýsuvík, en vinnumaður í Ólafshúsum 1855, f. 20. júlí 1795, d. 8. janúar 1860, Jónssonar, og konu Kolbeins, Vigdísar húsfreyju í Suðurkoti 1835, f. 16. júlí 1788, d. 29. ágúst 1839, Sigurðardóttur.
Börn Ingvars og Ástríðar í Eyjum voru:
1. Ágúst Sigurður Ingvarsson verkstjóri, f. 27. júní 1890, d. 25. nóvember 1963.
2. Sólrún Ingvarsdóttir húsfreyja, f. 9. okt. 1891, tvíburi við Einar, d. 21. ágúst 1974, gift Sveini Sigurhanssyni vélstjóra og múrara, f. 21. júní 1892, d. 6. desember 1963.
3. Einar Ingvarsson sjómaður, f. 9. okt. 1891, tvíburi við Sólrúnu, d. 18. maí 1968, kvæntur Guðrúnu Eyjólfsdóttur húsfreyju, f. 4. febr. 1898, d. 29. nóvember 1980.
4. Guðbjörg Ingvarsdóttir húsfreyja, f. 28. júní 1897, d. 2. september 1987, gift Sveinbirni Einarssyni trésmið, f. 12. júní 1890, d. 13. ágúst 1984.
5. Dýrfinna Ingvarsdóttir húsfreyja á Kirkjubæ, f. 7. júlí 1900, d. 1. desember 1986, gift Sigurði Gottskálkssyni frá Hraungerði í Eyjum, verkamanni og bónda á Kirkjubæ, f. 23. ágúst 1894, d. 5. apríl 1955.
6. Jóhanna Júlíana Ingvarsdóttir húsfreyja í Neskaupstað 1930, f. 13. okt. 1901, d. 2. nóvember 1937, gift Guðna Sveinssyni sjómanni á Norðfirði, f. 6. maí 1894, d. 15. nóvember 1975.
Sonur Ingvars var
7. Guðni Ingvarsson bryti, matsveinn, f. 17. júlí 1901, d. 5. október 1975.


ctr


Sex af börnum hjónanna á Hellnahóli, Ingvars og Ástríðar.
Aftari röð frá vinstri: Sólrún, Guðbjörg, Dýrfinna, Jóhanna.
Fremri röð frá vinstri: Einar, Ágúst Sigurður.

Einar var með foreldrum sínum á Hellnahóli u. Eyjafjöllum í æsku, var heyvinnumaður á Efstu-Grund þar 1910, var hjú þar 1920.
Þau Guðrún fluttust til Eyja 1924, bjuggu hjá Nikólínu í Laugardal, systur Guðrúnar, og giftu sig í lok ársins.
Þau bjuggu enn í Laugardal 1927, í Skálholti eldra 1930 með tveim börnum sínum, voru komin á Faxastíg 31 1940 og bjuggu þar.
Einar lést 1968. Guðrún bjó enn á Faxastíg 31 1979. Hún lést 1980.

I. Kona Einars, (26. desember 1924), var Guðrún Eyjólfsdóttir frá Mið-Grund u. Eyjafjöllum, húsfreyja, f. 4. febrúar 1898, d. 29. nóvember 1980.
Börn þeirra:
1. Jóhanna Eygló Einarsdóttir húsfreyja, f. 19. september 1927 í Laugardal, d. 12. júní 1983.
2. Ástþór Ingvi Einarsson bifreiðastjóri, f. 18. júní 1930 í Skálholti eldra, d. 9. júní 2018.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.