Pálína Sighvatsdóttir (Vilborgarstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Pálína Sighvatsdóttir frá Vilborgarstöðum fæddist 24. nóvember 1861, giftist í Kaupmannahöfn.
Foreldrar hennar voru Sighvatur Sigurðsson bóndi og formaður á Vilborgarstöðum, f. 10. júlí 1835, d. 8. júlí 1874 og kona hans Björg Árnadóttir húsfreyja, f. 3. nóvember 1830, d. 4. júní 1915.

Systkini Pálínu voru:
1. Friðrika Sighvatsdóttir húsfreyja á Vilborgarstöðum, f. 1858, gift Vigfúsi Scheving bónda, f. 5. september 1852, d. 23. desember 1939.
2. Sigríður Sighvatsdóttir húsfreyja á Kirkjubæ, f. 3. júní 1864, d. 12. september 1902, gift Jóni Eyjólfssyni.
3. Kristján Loftur Sighvatsson, f. 14. desember 1866, d. 20. maí 1890.
4. Guðmundur Sighvatsson, f. 16. maí 1871, d. 9. september 1871, „dó hastarlega úr magaveikindum“.
5. Björg Sighvatsdóttir húsfreyja á Gilsbakka, f. 5. júní 1873, d. 22. maí 1955, gift Erlendi Árnasyni.
Hálfsystkini Pálínu:
Launbarn Sighvats með Sigríði Sigurðardóttur í Dalahjalli, f. 14. ágúst 1841, d. 22. mars 1876:
6. Guðbjörg Sighvatsdóttir húsfreyja í Stíghúsi, f. 22. desember 1865, d. 29. apríl 1951. Maður hennar var Pálmi Guðmundsson.
Launbarn Sighvats með Vilborgu Steinmóðsdóttur frá Steinmóðshúsi:
7. Kristín Sighvatsdóttir, f. 24. maí 1869. Hún var vinnukona í Godthaab 1890, fór til Vesturheims 1902.

Pálína var með foreldrum sínum meðan beggja naut við. Faðir hennar lést eftir Gauksslysið 1874. Hún var með móður sinni til ársins 1880, er hún varð vinnukona í Godthaab, var með móður sinni 1881, var vinnukona í Garðinum 1882-1885.
Hún fluttist til Danmerkur 1885 frá Garðinum.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.