Níels Kristinn Benedikt Bjarnasen

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Níels Bjarnasen.

Níels Bjarnasen fæddist 13. febrúar 1879 í Garðinum og mun hafa látist erlendis.
Foreldrar hans voru Gísli Bjarnasen verslunarstjóri, f. 30. maí 1837, d. 16. mars 1888, og kona hans Dortija Maria Andersdóttir Bjarnasen húsfreyja í Garðinum f. 3. júní 1839, d. 7. apríl 1916.

Börn Maríu og Gísla voru:
1. Johan Carl Anders Bjarnasen, f. 5. febrúar 1869, d. 4. maí 1875 „úr Diphtheria“, (barnaveiki).
2. María Sigríður Ásdís Bjarnasen, f. 12. mars 1871. Hún fluttist til Danmerkur.
3. Jóhann Gísli Anders Bjarnasen, f. 30. desember 1873. Hann fluttist til Danmerkur.
4. Rósa Jónína Petrea Bjarnasen, f. 20. ágúst 1875 í Stakkagerði. Hún fluttist til Danmerkur.
5. Jóhanna Soffía Ágústa Bjarnasen, f. 24. ágúst 1877. Hún fluttist til Danmerkur.
6. Níels Kristinn Benedikt Bjarnasen, f. 23. febrúar 1879. Hann fluttist til Danmerkur.
7. Anders Peter Asmund Bjarnasen, f. 2. febrúar 1882 í Pétursborg. Hann fluttist til Danmerkur.

Níels var með fjölskyldu sinni Garðinum 1880, í Pétursborg 1881, á Vilborgarstöðum 1882 og þaðan fór fjölskyldan til Danmerkur 1883.
Faðir hans var þar daglaunamaður og móðir hans hafði tekjur af saumaskap.
Gísli faðir hans lést 1888 og í æsku var Níels með móur sinni, sem hélt heimili fyrir börnin með saumaskap og útleigu húsnæðis.
Ungur að árum vann Níels við loðskinnasölu. Síðar fluttist hann til Bretlands og var kaupmaður í London.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.