María Sigríður Ásdís Bjarnasen

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

María Sigríður Ásdís Bjarnasen fæddist 12. mars 1871 í Garðinum.
Foreldrar hennar voru Gísli Bjarnasen verslunarstjóri, f. 30. maí 1837, d. 16. mars 1888, og kona hans Dortija Maria Andersdóttir Bjarnasen húsfreyja í Garðinum f. 3. júní 1839, d. 7. apríl 1916.

Börn Maríu og Gísla voru:
1. Johan Carl Anders Bjarnasen, f. 5. febrúar 1869, d. 4. maí 1875 „úr Diphtheria“, (barnaveiki).
2. María Sigríður Ásdís Bjarnasen, f. 12. mars 1871. Hún fluttist til Danmerkur.
3. Jóhann Gísli Anders Bjarnasen, f. 30. desember 1873. Hann fluttist til Danmerkur.
4. Rósa Jónína Petrea Bjarnasen, f. 20. ágúst 1875 í Stakkagerði. Hún fluttist til Danmerkur.
5. Jóhanna Soffía Ágústa Bjarnasen, f. 24. ágúst 1877. Hún fluttist til Danmerkur.
6. Níels Kristinn Benedikt Bjarnasen, f. 23. febrúar 1879. Hann fluttist til Danmerkur.
7. Anders Peter Asmund Bjarnasen, f. 2. febrúar 1882 í Pétursborg. Hann fluttist til Danmerkur.

María var með fjölskyldu sinni í Garðinum 1871-1873, í Nöjsomhed 1974, í Gíslahúsi, ,,annars nafnlaust hús‘‘ 1875, í Garðinum 1876 til 1880, í Pétursborg í lok árs 1881, á Vilborgarstöðum 1882 og þaðan fór fjölskyldan til Danmerkur 1883.

María var gift húsfreyja í Svendborg í Danmörku.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.