Magnús Jónsson (Vilborgarstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Magnús Jónsson bóndi á Vilborgarstöðum fæddist 1771 og lést 2. ágúst 1846.
Foreldrar hans voru Jón Einarsson bóndi í Gvendarhúsi, f. (1740), og kona hans, Margrét Brandsdóttir húsfreyja, f. um 1740, d. 27. desember 1802. Þau eru ókunn a.ö.l.

Magnús var bóndi á Vilborgarstöðum 1801 og 1816, húsbóndi á Gjábakka 1823 með Herborgu. Hann var kominn til Þórdísar dóttur sinnar á Borgareyrum í Stóra-Dalssókn 1835 og dvaldi þar til dd.

Kona Magnúsar, (26. nóvember 1797), var Herborg Helgadóttir húsfreyja, f. 1762 á Vilborgarstöðum, d. 18. nóvember 1828 hjá dóttur sinni í Stóru Hildisey í A-Landeyjum. Magnús var síðari maður hennar. Fyrri maður hennar var Guðbrandur Þorsteinsson bóndi, f. 1768, d. 13. maí 1797.
Börn Magnúsar og Herborgar hér:
1. Jón Magnússon, f. 18. febrúar 1798, d. 28. febrúar 1798 úr ginklofa.
2. Þórdís Magnúsdóttir, skírð 21. ágúst 1800, d. 29. nóvember 1855. Þórdís á fjölda afkomenda í Eyjum og víðar.
3. Jón Magnússon, f. 14. desember 1801, d. 21. desember 1801 úr ginklofa.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.