Kristín Auður Lárusdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Kristín Auður Lárusdóttir húsfreyja fæddist 26. september 1957 á Brimhólabraut 15.
Foreldrar hennar voru Lárus Kristjánsson frá Heiðarbrún, trésmiður, f. 28. ágúst 1929, d. 19. júlí 2012, og kona hans Kristjana Guðrún Einarsdóttir frá Kollsá í Grunnavíkurhreppi, N.-Ís., húsfreyja, fiskverkakona, f. 10. október 1926, d. 25. júní 2012.

Börn Kristjönu og Lárusar:
1. Ólafur Einar Lárusson kennari, f. 4. mars 1954 að Brimhólabraut 15.
2. Kristín Auður Lárusdóttir húsfreyja, verslunarmaður, f. 26. september 1957 að Brimhólabraut 15.
3. Hrönn Lárusdóttir húsfreyja, bóndi í Pétursey í Mýrdal, f. 16. desember 1958.
4. Elín Lárusdóttir húsfreyja, leiðbeinandi, f. 4. febrúar 1961.
5. Iðunn Lárusdóttir húsfreyja, skrifstofumaður, f. 7. febrúar 1962.
6. Lára Kristjana Lárusdóttir húsfreyja, verslunarmaður, f. 31. janúar 1965.

Kristín var með foreldrum sínum í æsku, á Brimhólabraut 15 og 29.
Hún vann verslunarstörf.
Þau Jónas giftu sig 1977, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu við Helgafellsbraut 7 1986, búa nú við Laufvang 12 í Hafnarfirði.

I. Maður Kristínar Auðar, (17. desember 1977), er Jónas Kristinn Eggertsson trésmiður, f. 25. október 1956.
Börn þeirra:
1. Lárus Gunnar Jónasson matreiðslumaður, rekur ,,Fiskifélagið“, f. 17. janúar 1978. Kona hans Halldóra Björk Smáradóttir.
2. Brynjar Freyr Jónasson tölvunarfræðingur hjá Íslandsbanka, f. 15. mars 1983. Kona hans Vilborg Jónsdóttir.



Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.