Kristjana Guðrún Einarsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Kristjana Guðrún Einarsdóttir.

Kristjana Guðrún Einarsdóttir frá Kollsá í Staðarsókn í Grunnavíkuhreppi, N-Ís., húsfreyja, fiskverkakona á Brimhólabraut 15 fæddist 10. október 1926 á Kollsá og lést 25. júní 2012.
Foreldrar hennar voru Einar Guðmann Guðleifsson bóndi, f. 16. apríl 1886, d. 4. febrúar 1967 og kona hans Jóna Ólöf Jóhannesdóttir húsfreyja, f. 10. júlí 1887, d. 29. nóvember 1967.

Kristjana Guðrún fluttist til Eyja á síðari hluta fimmta áratugarins og vann hjá Ísfélagi Vestmannaeyja og Fiskverkuninni Eyjaberg.
Þau Lárus giftu sig 1953, bjuggu á Brimhólabraut 15 lengstan hluta sambúðar sinnar, en dvöldu að síðustu í Hraunbúðum.
Þau eignuðust 6 börn.
Síðari hluta ævinnar stundaði Kristjana Guðrún einnig fiskverkun.
Kristjana Guðrún lést í júní 2012 og Lárus í júlí 2012.

Maður hennar, (21. nóvember 1953), var Lárus Kristjánsson húsasmíðameistari frá Heiðarbrún, f. 28. ágúst 1929, d. 19. júlí 2012.
Börn þeirra:
1. Ólafur Einar Lárusson kennari, f. 4. mars 1954 að Brimhólabraut 15.
2. Kristín Auður Lárusdóttir húsfreyja, verslunarmaður, f. 26. september 1957 að Brimhólabraut 15.
3. Hrönn Lárusdóttir húsfreyja, bóndi í Pétursey í Mýrdal, f. 16. desember 1958.
4. Elín Lárusdóttir húsfreyja, leiðbeinandi, f. 4. febrúar 1961.
5. Iðunn Lárusdóttir húsfreyja, skrifstofumaður, f. 7. febrúar 1962.
6. Lára Kristjana Lárusdóttir húsfreyja, verslunarmaður, f. 31. janúar 1965.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.