Kirkjubæjarbraut 17

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Kirkjubæjarbraut 17 þegar húsið var grafið upp eftir gos.

Húsið við Kirkjubæjarbraut 17 var byggt á árunum 1952-1957

Sigfús J Johnsen og Kristín Sigríður Þorsteinsdóttir byggðu húsið og bjuggu þar til 1968. Bragi I Ólafsson og Ingibjörg Blomsterberg

Í húsinu bjuggu þegar byrjaði að gjósa 23. janúar 1973 hjónin Þorleifur Jónasson og Sigurfinna Eiríksdóttir, synir þeirra Herbert, Jónas Pétur og Guðmundur og sambýliskona hans Berta Kjartansdóttir, dóttir hennar Guðrún Erna Sigurðardóttir og dóttir þeirra Erla.

Eftir gos eignuðust Frímúrar húsið og síðar Arnar G Hjaltalín og Helga Kristín Kolbeins.


Heimildir

  • Fasteignamat ríkisins, www.fmr.is.
  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1. desember 1972.
  • Húsin í hrauninu haust 2012.