68.894
breytingar
Ekkert breytingarágrip |
(skrifaði æviskrá.) |

Lína 1: | Lína 1: | ||
Sveinn | '''Sveinn Pálsson Scheving''', [[Steinsstaðir|Steinsstöðum]], var [[Lögreglan í Vestmannaeyjum|yfirlögregluþjónn]] í Vestmannaeyjum á árunum 1918-1932. | ||
[[Flokkur:Fólk]] | ==Æviskrá== | ||
Sveinn Pálsson Scheving bóndi, sjómaður, hreppstjóri og síðar lögregluþjónn á [[Steinsstaðir|Steinsstöðum]] fæddist 8. marz 1862 í Görðum í Reynishverfi í Mýrdal og lézt 3. ágúst 1943 í Eyjum. | |||
==Ætt og uppruni== | |||
Foreldrar Sveins voru Páll bóndi í Görðum í Mýrdal, f. 19. jan. 1822, d. 9. apríl 1864, drukknaði í lendingu, er hann kom úr róðri, Vigfúsar Schevings bónda í Görðum, f. 1790, drukknaði í Dyrhólaósi 25. apríl 1822, Vigfússonar og konu (1818) Vigfúsar Schevings í Görðum, Guðríðar húsfreyju, f. 1790 í Vatnsdal í Fljótshlíð, d. 14. nóvember 1871 að Reyni í Mýrdal, Jónsdóttur, Gunnlaugssonar.

Móðir Sveins Schevings og kona (1851) Páls í Görðum var Sigríður húsfreyja, f. 22. janúar 1832 í Neðri-Dal u. Eyjafjöllum, d. 6. júlí 1871 í Görðum, Sigurðar bónda í Neðri-Dal og Skarðshjáleigu, f. 1787, d. 1852, Jónssonar og konu Sigurðar bónda, Ingibjargar húsfreyju, f. 1801, d. 1839, Jónsdóttur, Bjarnasonar.

Bróðir Sveins Schevings var [[Vigfús Scheving]] á [[Vilborgarstaðir|Vilborgarstöðum]], faðir [[Sigfús Scheving|Sigfúsar]] í [[Heiðarhvammur|Heiðarhvammi]] og [[Jóhann Scheving|Jóhanns]] á [[Vilborgarstaðir|Vilborgarstöðum]]. | |||
==Lífsferill== | |||
Sveinn ólst upp í Görðum til ársins 1876, var vinnudrengur í Hrífunesi í Skaftártungum 1876-1879, var hjá stjúpa sínum í Görðum 1879-1881 og vinnumaður í Reynishólum 1881-1882.

Nokkrar vertíðir var hann til sjós á Suðurnesjum. Hann var svo vinnumaður í Dalsseli u. Eyjafjöllum um hríð.

Til Eyja flutti hann frá Fitjarmýri u. Eyjafjöllum 1896, þá kvæntur [[Kristólína Bergsteinsdóttir|Kristólínu Bergsteinsdóttur]] frá Fitjarmýri. Bjuggu þau í [[Dalbær|Dalbæ]], sem þau höfðu keypt.

Þau fengu [[Steinsstaðir|Steinsstaði]] til ábúðar 1901, en húsin voru léleg og túnin í órækt eftir að vera í eyðibyggð. Reistu þau Sveinn nýtt hús og hlöðu, sléttuðu og ræktuðu tún.

Sveinn stundaði sjóróðra á vertíðum og var með [[Hannes Jónsson|Hannesi lóðs]] á [[Gideon]] 14 vertíðir. Við upphaf vélbátaútgerðar eignaðist Sveinn sjötta hlut í vélbátnum [[Haffrú]]. Var hún gerð út til 1926, en þá seld til Faxaflóahafna.

Sveinn var einn af stofnendum pöntunarfélags með [[Ofanbyggjar|Ofanbyggjurum]] 1905, en það lifði til stofnunar [[Kaupfélagið Herjólfur|Kaupfélagsins Herjólfs]].

Sveinn Scheving sat í hreppsnefnd 1901-18, sóknarnefndarmaður varð hann 1898 og næstu 30 árin, meðhjálpari, fjárhaldsmaður kirkjunnar í 23 ár. Auk þess var hann m.a. formaður fasteignamatsnefndar um skeið, fátækrafulltrúi, stefnuvottur og í skólanefnd. Þá var hann hreppstjóri 1916-18. Hann var skipaður lögregluþjónn 1918 og gegndi hann því embætti til 1932. | |||
==Fjölskylda== | |||
Kona Sveins (1895) var [[Kristólína Bergsteinsdóttir]], f. 1868 á Tjörnum u. Eyjafjöllum. Foreldrar hennar voru Bergsteinn Einarsson bóndi á Tjörnum og Fitjarmýri og k.h. Anna Þorleifsdóttir húsfreyja.

Börn þeirra voru: | |||
#[[Guðjón Scheving|Guðjón]], f. 1898. | |||
#[[Anna Sigríður Scheving|Anna Sigríður]], f. 1901. | |||
#[[Páll Scheving|Páll]], f. 1904. | |||
#[[Sigurður Scheving|Sigurður]], f. 1910. | |||
# Þrjú börn, sem dóu ung. | |||
{{Heimildir| | |||
*''Upphaflega æviskrá skrifaði [[Víglundur Þór Þorsteinsson.]]'' | |||
*Björn Magnússon. ''Vestur-Skaftfellingar''. Reykjavík: Prentsmiðjan Leiftur H.F., 1970-1973. | |||
*Brynleifur Tobíasson. ''Hver er maðurinn''. Reykjavík: Bókaforlag Fagurskinna Reykjavík, 1944. | |||
*Manntöl. | |||
*Prestsþjónustubækur.}} | |||
[[Flokkur: Fólk]] | |||
[[Flokkur:Sjómenn]] | |||
[[Flokkur:Hreppstjórar]] | |||
[[Flokkur:Lögregluþjónar]] |