Jón Valgeirsson (stýrimaður)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
(Endurbeint frá Jón Valgeirsson)
Fara í flakk Fara í leit

Jón Valgeirsson frá Keflavík, sjómaður, stýrimaður fæddist þar 4. júlí 1959.
Foreldrar hans voru Sigurður Valgeir Sveinsson vélstjóri, f. 10. febrúar 1930, d. 17. apríl 2003, og kona hans Guðný Björg Gísladóttir, húsfreyja, f. 9. október 1928, d. 7. október 2016.

Börn Guðnýjar og Valgeirs:
1. Bjarney Jóna Valgeirsdóttir, síðast í Réttarholti 1-3 í Fjarðabyggð, f. 25. júlí 1950, d. 3. júlí 2022. Maður hennar Björn Jóhann Guðjohnsen.
2. Sveinn Rúnar Valgeirsson, f. 5. október 1951. Kona hans Þóra Guðjónsdóttir Aanes.
3. Drengur, f. 6. október 1952, d. sama dag.
4. Ingibjörg Soffía Valgeirsdóttir, f. 5. júní 1954. Barnsfaðir hennar Leifur Kristinn Guðmundsson. Barnsfaðir hennar Walderhaug.
5. Elsa Valgeirsdóttir húsfreyja, f. 27. september 1955. Maður hennar Guðmundur Michelsen Guðlaugsson.
6. Gísli Valgeirsson, f. 30. október 1957.
7. Jón Valgeirsson stýrimaður, f. 4. júlí 1959 í Keflavík. Fyrrum sambúðarkona hans Þórdís Erlingsdóttir.
8. Elín Perla Valgeirsdóttir, býr í Danmörku, f. 10. janúar 1961 í Keflavík.
9. Valgeir Valgeirsson, f. 13. maí 1962 í Keflavík. Barnsmóðir hans Hildur Sigurðardóttir.
10. Íris Björk Valgeirsdóttir, býr í Njarðvík, f. 26. nóvember 1963 í Keflavík. Barnsfaðir hennar Guðmundur Bragi Jóhannsson.
11. Kristinn Bjarki Valgeirsson, f. 6. nóvember 1966 í Keflavík. Kona hans Þórunn Rúnarsdóttir.
12. Anna María Valgeirsdóttir, f. 9. október 1968. Bansfaðir hennar Birgir Ingi Guðmundsson.
Fósturdóttir Guðnýjar og Valgeirs:
13. Sigfríður Konráðsdóttir, f. 20. maí 1964. Maki Valgeir Ólafur Kolbeinsson.

Jón var með foreldrum sínum í æsku, en þau skildu.
Hann var sjómaður og varð stýrimaður.
Þau Þórdís bjuggu saman, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu á Kanastöðum við Hásteinsveg 22, en skildu.

I. Sambúðarkona Jóns var Þórdís Erlingsdóttir frá Keflavík, húsfreyja, fiskverkakona, f. 6. október 1962, d. 18. nóvember 2022.
Börn þeirra:
1. Agnar Mar Jónsson, f. 11. nóvember 1982, d. 26. september 1985.
2. Hersir Mar Jónsson, sjómaður, f. 28. desember 1986 í Eyjum, d. 10. júlí 2020 í Reykjanesbæ.
3. Alexander Örn Jónsson, f. 19. mars 1990, d. 16. apríl 1995.
4. Ívar Örn Jónsson, f. 7. mars 1997.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.