Valgeir Sveinsson (vélstjóri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Sigurður Valgeir Sveinsson.

Sigurður Valgeir Sveinsson frá Reykjavík, rafvirki, vélstjóri, útgerðarmaður fæddist þar 10. febrúar 1930 og lést 17. apríl 2003 á Landspítalanum.
Foreldrar hans voru Sveinn Jóhannesson, f. 14. nóvember 1888, d. 15. ágúst 1950 og Kristrún Jónsdóttir f. 6. ágúst 1887, d. 11. desember 1942.

Valgeir var með foreldrum sínum á Framnesvegi, síðan á Brú við Þormóðsstaði, en móðir hans lést, er hann var á þrettánda árinu.
Hann lærði vélstjórn, rafvirkjun og fékk stýrimannsréttindi á minni báta.
Valgeir lét smíða 11 tonna bát, gerði hann út frá Höfnum á Suðurnesjum á handfæri. Báturinn slitnaði frá bólfærum sínum og eyðilagðist. Hann fékk 20 tonna bát smíðaðan og gerði hann út á snurvoð og handfæri um skeið. Hann hætti útgerð og varð vélstjóri.
Þau Guðný Björg giftu sig 1951, eignuðust 12 börn og fóstruðu eitt barn. Þau bjuggu í fyrstu á Brúarenda í Skerjafirði, en síðan á Borgarvegi 13 í Njarðvík, á Sólvangi og á Staðarhóli Höfnum.
Þau fluttu til Eyja 1974, bjuggu á Helgafellsbraut 18, en skildu.
Valgeir bjó síðast á Ásum við Skólaveg 47.
Hann lést 2003.

I. Kona Sigurðar Valgeirs, (16. febrúar 1951, skildu), var Guðný Björg Gísladóttir frá Eskifirði, húsfreyja, fiskiðnaðarkona, f. 9. október 1928, d. 7. október 2016.
Börn þeirra:
1. Bjarney Jóna Valgeirsdóttir, síðast í Réttarholti 1-3 í Fjarðabyggð, f. 25. júlí 1950, d. 3. júlí 2022. Maður hennar Björn Jóhann Guðjohnsen.
2. Sveinn Rúnar Valgeirsson, f. 5. október 1951. Kona hans Þóra Guðjónsdóttir Aanes.
3. Drengur, f. 6. október 1952, d. sama dag.
4. Ingibjörg Soffía Valgeirsdóttir, f. 5. júní 1954. Barnsfaðir hennar Leifur Kristinn Guðmundsson. Barnsfaðir hennar Walderhaug.
5. Elsa Valgeirsdóttir, f. 27. september 1955. Maður hennar Guðmundur Michelsen Guðlaugsson.
6. Gísli Valgeirsson, f. 30. október 1957.
7. Jón Valgeirsson, f. 4. júlí 1959. Fyrrum kona hans Þórdís Erlingsdóttir.
8. Elín Perla Valgeirsdóttir, býr í Danmörku, f. 10. janúar 1961 í Keflavík. Maður hennar Tom.
9. Valgeir Valgeirsson, f. 13. maí 1962 í Keflavík. Barnsmóðir hans Hildur Sigurðardóttir.
10. Íris Björk Valgeirsdóttir, býr í Njarðvík, f. 26. nóvember 1963 í Keflavík. Barnsfaðir hennar Guðmundur Bragi Jóhannsson.
11. Kristinn Bjarki Valgeirsson, f. 6. nóvember 1966 í Keflavík. Kona hans Þórunn Rúnarsdóttir.
12. Anna María Valgeirsdóttir, f. 9. október 1968. Bansfaðir hennar Birgir Ingi Guðmundsson.
Fósturdóttir Guðnýjar og Valgeirs:
13. Sigfríður Konráðsdóttir, f. 20. maí 1964. Maki Valgeir Ólafur Kolbeinsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.