Gunnlaugur Úlfar Gunnlaugsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Gunnlaugur Úlfar Gunnlaugsson.

Gunnlaugur Úlfar Gunnlaugsson frá Siglufirði, pípulagningamaður fæddist þar 5. apríl 1958 og lést 22. september 2019 á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.
Foreldrar hans voru Gunnlaugur Þorfinnsson Jónsson frá Siglufirði, f. 22. október 1922, d. 15. október 2003, og Þuríður Andrésdóttir frá Eyrarbakka, f. 8. mars 1924, d. 6. ágúst 2002.

Bróðir Gunnlaugs:
1. Sverrir Gunnlaugsson stýrimaður, skipstjóri, f. 18. desember 1948.

Gunnlaugur var með foreldrum sínum í æsku.
Hann lauk sveinsprófi í pípulögnum 1982, fékk meistararéttindi 1988. Gunnlaugur flutti til Eyja 1981, bjó þar til 1995, en flutti þá til Grindavíkur.
Hann vann í Eyjum við pípulagnir, var til sjós á Hugin VE 55.
Hann var félagi í Kiwanis og starfaði mikið fyrir Íþróttafélagið Þór. Síðar vann hann með Lions í Grindavík, var formaður, er hann lést.
Gunnlaugur Úlfar stofnaði Lagnaþjónustu Suðurnesja ehf. með Rúnari Helgasyni 2002. Það fékk viðurkenninguna Framúrskarandi fyrirtæki frá Credit info.
Hann eignaðist barn með Hafdísi 1980.
Þau Lilja giftu sig, eignuðust tvö börn, bjuggu við Illugagötu 34. Þau skildu.
Þau Kristín giftu sig 2008, eignuðust ekki börn saman, en Kristín átti barn frá fyrra sambandi.
Gunnlaugur Úlfar lést 2019.

I. Barnsmóðir Gunnlaugs Úlfars er Hafdís Þorsteinsdóttir, f. 27. október 1959.
Barn þeirra:
1. Eva Rut Gunnlaugsdóttir, f. 16. ágúst 1980. Barnsfaðir hennar er Hugi Freyr Valsson. Unnusti hennar Þorbjörn Hrannar Sigfússon.

II. Kona Gunnlaugs Úlfars, skildu, er Lilja Richardsdóttir, f. 18. júní 1956.
Börn þeirra:
2. Gunný Gunnlaugsdóttir, f. 5. janúar 1984. Barnsfaðir hennar Matthías Svansson.
3. Þorfinnur Gunnlaugsson, f. 10. maí 1986. Kona hans Ágústa Jóna Heiðdal.
Barn Lilju áður með Guðmundi Ásvaldi Tryggvasyni
4. Tryggvi Guðmundsson, f. 30. júlí 1974 .

III. Kona Gunnlaugs Úlfars, (5. apríl 2008), er Kristín Gísladóttir frá Patreksfirði, húsfreyja, f. 2. júní 1960. Foreldrar hennar Gísli Þór Victorsson, múrarameistari, f. 11. október 1934, d. 15. febrúar 2022, og Sigurósk Eyland Jónsdóttir, f. 8. maí 1937, d. 6. júlí 2020.
Barn Kristínar frá fyrra hjónabandi:
5. Sunna Sigurósk Gísladóttir, f. 9. september 1986. aður hennar Gylfi Gígja Geirsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.