Guðrún Ólafsdóttir (Arnardrangi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Guðrún Ólafsdóttir frá Arnardrangi, húsfreyja í Reykjavík fæddist 30. október 1909 í Reykjavík og lést 13. ágúst 1985.
Foreldrar hennar voru Ólafur Ó. Lárusson læknir, f. 1. september 1884 á Sjónarhóli á Vatnsleysuströnd, Gull., d. 6. júní 1952 í Eyjum, og kona hans Sylvía Níelsína Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 13. ágúst 1883 á Háeyri á Eyrarbakka, d. 22. október 1957.

Börn Sylvíu og Ólafs:
1. Jóhanna Gunnhildur Ólafsdóttir saumakona, f. 24. mars 1907 í Reykjavík, d. 31. júlí 1966. Barnsfaðir hennar Sveinn Benediktsson.
2. Magnús Óskar Ólafsson stórkaupmaður í Reykjavík, f. 29. apríl 1908 í Reykjavík, d. 3. september 1968. Kona hans Guðrún Ólafía Karlsdóttir.
3. Guðrún Ólafsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 30. október 1909 í Reykjavík, d. 13. ágúst 1985. Maður hennar Örn Hauksteinn Matthíasson.
4. Lárus Guðmundur Óskar Ólafsson lyfjafræðingur og apótekari á Selfossi, f. 22. október 1911 á Eiðum í Eiðaþinghá, d. 10. apríl 1987. Kona hans, (skildu), Ásdís Lárusdóttir.
5. Sigurður Óskar Ólafsson verslunarmaður í Reykjavík, f. 2. júní 1913 á Brekku í Fljótsdal, S.-Múl., d. 16. nóvember 1955. Fyrrum kona hans Einarína Pálína Árnadóttir. Kona hans Aðalbjörg Vilhjálmsdóttir.
6. Guðmundur Óskar Ólafsson bókari í Reykjavík, f. 14. júní 1914 á Brekku í Fljótsdal, S.-Múl., d. 18. mars 1981. Kona hans Olga Hallgrímsdóttir.
7. Jakob Óskar Ólafsson skrifstofustjóri í Eyjum, síðar í Reykjavík, f. 18. ágúst 1915 á Brekku í Fljótsdal, S.-Múl., d. 18. febrúar 1992. Kona hans Jóhanna María Bjarnasen.
8. Axel Óskar Ólafsson héraðsdómslögmaður, innheimtustjóri í Reykjavík, f. 21. janúar 1917 á Brekku í Fljótsdal, S.-Múl., d. 8. ágúst 1980. Kona hans Þorbjörg Andrésdóttir.
9. Sigríður Sólveig Ólafsdóttir húsfreyja í Reykjavík og Stykkishólmi, f. 7. apríl 1918 á Brekku í Fljótsdal, S.-Múl., d. 14. desember 1945. Maður hennar Kjartan Jónsson.
10. Halldór Óskar Ólafsson loftsiglingafræðingur, flugleiðsögumaður í Reykjavík, f. 19. nóvember 1923 á Brekku í Fljótsdal, S.-Múl. Kona hans Helena Svanhvít Sigurðardóttir.

Guðrún var með foreldrum sínum í æsku, í Reykjavík, á Eiðum í Eiðaþinghá, á Brekku í Fljótsdal og fluttist með þeim til Eyja 1925, var með þeim 1930 og 1933.
Þau Örn giftu sig 1933, eignuðust tvö börn og fóstruðu barn um sjö ára skeið.

I. Maður Guðrúnar, (4. júní 1933), var Örn Hauksteinn Matthíasson skrifstofumaður, f. 27. ágúst 1907 í Haukadal í Dýrafirði, d. 13. júní 1994 á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund. Foreldrar hans voru Matthías Ólafsson kaupmaður, alþingismaður í Haukadal, síðar starfsmaður Fiskifélags Íslands og Landsverslunar, f. 25. júní 1857, d. 8. febrúar 1942, og kona hans Marsibil Ólafsdóttir húsfreyja, f. 4. september 1869, d. 24. júlí 1964.
Börn þeirra:
1. Ólafur Örn Arnarson læknir, f. 27. júlí 1933 í Eyjum. Kona hans Kristín Solveig Jónsdóttir.
2. Ingólfur Arnarson tannlæknir, f. 25. ágúst 1943, d. 25. október 2007. Fyrrum kona hans Kolbrún Ingimarsdóttir. Fyrrum kona hans Halldóra Anna Þorvaldsdóttir. Kona hans Halldóra Haraldsdóttir, látin.
3. Sylvía Arnardóttir húsfreyja, skrifstofumaður í Hafnarfirði, f. 9. febrúar 1935, d. 4. febrúar 2016. Maður hennar Magnús Snorrason.
Fóstursonur fyrstu sjö ár ævi sinnar, sonur Sigríðar Ólafsdóttur systur Guðrúnar:
4. Ólafur Hrafn Kjartansson tæknifræðingur, f. 26. maí 1945. Kona hans Kristín Nikulásdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Morgunblaðið 24. júní 1994. Minning Arnar H. Matthíassonar.
  • Morgunblaðið 5. nóvember 2007. Minning Ingólfs Arnarsonar.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.