Jakob Ó. Ólafsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Jakob Óskar Ólafsson gjaldkeri, bankastarfsmaður, skrifstofustjóri fæddist f. 18. ágúst 1915 á Brekku í Fljótsdal, S.-Múl. og lést 18. febrúar 1992.
Foreldrar hans voru Ólafur Ó. Lárusson læknir, f. 1. september 1884 á Sjónarhóli á Vatnsleysuströnd, Gull., d. 6. júní 1952 í Eyjum, og kona hans Sylvía Níelsína Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 13. ágúst 1883 á Háeyri á Eyrarbakka, d. 22. október 1957.

Börn Sylvíu og Ólafs:
1. Jóhanna Gunnhildur Ólafsdóttir saumakona, f. 24. mars 1907 í Reykjavík, d. 31. júlí 1966. Barnsfaðir hennar Sveinn Benediktsson.
2. Magnús Óskar Ólafsson stórkaupmaður í Reykjavík, f. 29. apríl 1908 í Reykjavík, d. 3. september 1968. Kona hans Guðrún Ólafía Karlsdóttir.
3. Guðrún Ólafsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 30. október 1909 í Reykjavík, d. 13. ágúst 1985. Maður hennar Örn Hauksteinn Matthíasson.
4. Lárus Guðmundur Óskar Ólafsson lyfjafræðingur og apótekari á Selfossi, f. 22. október 1911 á Eiðum í Eiðaþinghá, d. 10. apríl 1987. Kona hans, (skildu), Ásdís Lárusdóttir.
5. Sigurður Óskar Ólafsson verslunarmaður í Reykjavík, f. 2. júní 1913 á Brekku í Fljótsdal, S.-Múl., d. 16. nóvember 1955. Fyrrum kona hans Einarína Pálína Árnadóttir. Kona hans Aðalbjörg Vilhjálmsdóttir.
6. Guðmundur Óskar Ólafsson bókari í Reykjavík, f. 14. júní 1914 á Brekku í Fljótsdal, S.-Múl., d. 18. mars 1981. Kona hans Olga Hallgrímsdóttir.
7. Jakob Óskar Ólafsson skrifstofustjóri í Eyjum, síðar í Reykjavík, f. 18. ágúst 1915 á Brekku í Fljótsdal, S.-Múl., d. 18. febrúar 1992. Kona hans Jóhanna María Bjarnasen.
8. Axel Óskar Ólafsson héraðsdómslögmaður, innheimtustjóri í Reykjavík, f. 21. janúar 1917 á Brekku í Fljótsdal, S.-Múl., d. 8. ágúst 1980. Kona hans Þorbjörg Andrésdóttir.
9. Sigríður Sólveig Ólafsdóttir húsfreyja í Reykjavík og Stykkishólmi, f. 7. apríl 1918 á Brekku í Fljótsdal, S.-Múl., d. 14. desember 1945. Maður hennar Kjartan Jónsson.
10. Halldór Óskar Ólafsson loftsiglingafræðingur, flugleiðsögumaður í Reykjavík, f. 19. nóvember 1923 á Brekku í Fljótsdal, S.-Múl. Kona hans Helena Svanhvít Sigurðardóttir.

Jakob var með foreldrum sínum í æsku, á Brekku í Fljótsdal, flutti með þeim ti Eyja 1925, bjó með þeim í Drífanda við Bárugötu 2 og í Arnardrangi.
Hann lauk verslunarskólaprófi í Verslunarskóla Íslands 1935, nam um skeið í Þýskalandi.
Jakob varð hafnargjaldkeri í Eyjum 1938-1946. Þá varð hann gjaldkeri við Útvegsbankann í Eyjum og síðar aðalbókari og skrifstofustjóri. Síðar vann hann um skeið í Útvegsbankanum í Kópavogi.
Jakob var einn af stofnendum Tónlistarfélags Vestmannaeyja og sat lengi í stjórn þess. Þau Jóhanna giftu sig 1942, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu í fyrstu á Brekastíg 32, en síðar við Faxastíg 1.
Þau dvöldu lengi í íbúð sinni við Háteigsveg 8 í Reykjavík vegna veikinda Jóhönnu og þangað flutti Jakob lögheimili sitt eftir lát hennar, en að síðustu dvaldi hann í Hraunbúðum.
Jóhanna lést 1972 og Jakob 1992.

I. Kona Jakobs, (10. janúar 1942), var Jóhanna María Bjarnasen húsfreyja, f. 19. desember 1919, d. 15. júlí 1972.
Börn þeirra.
1. Guðrún Jóhanna Jakobsdóttir húsfreyja, skrifstofumaður, f. 11. júní 1943 á Brekastíg 32. Maður hennar Sigurður Ágúst Tómasson.
2. Sigríður Sylvía Jakobsdóttir skrifstofumaður, f. 7. nóvember 1945 á Brekastíg 32. Maður hennar Eyjólfur Martinsson, látinn.
3. Ólafur Óskar Jakobsson skrifstofumaður, f. 15. ágúst 1952 á Faxastíg 1. Kona hans Sigríður Þórarinsdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1972.
  • Íslendingabók.is.
  • Læknar á Íslandi. Gunnlaugur Haraldsson. Þjóðsaga 2000.
  • Manntöl.
  • Morgunblaðið 29. febrúar 1992. Minning.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.