Guðný Hafsteinsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Guðný Hafsteinsdóttir.

Guðný Hafsteinsdóttir húsfreyja, kennari fæddist 19. júlí 1956 að Boðaslóð 26.
Foreldrar hennar Hafsteinn Júlíusson múrarameistari frá Stafholti, f. 8. júní 1928, d. 15. febrúar 1990, og kona hans María Stefanía Björnsdóttir frá Siglufirði, húsfreyja, saumakona, f. 3. september 1931, d. 25. október 2009.

Börn Maríu og Hafsteins:
1. Sigurveig Helga Hafsteinsdóttir húsfreyja, þroskaþjálfi, f. 9. september 1951 að Litlu-Heiði. Maður hennar Bjarni Ragnarsson.
2. Eiríksína Kristbjörg Hafsteinsdóttir húsfreyja, sjúkraþjálfari, f. 20. júní 1955 að Boðaslóð 26. Maður hennar Óskar Sverrisson.
3. Guðný Hafsteinsdóttir húsfreyja, kennari, f. 19. júlí 1956 að Boðaslóð 26. Maður hennar Jóhannes Sveinsson.
4. Sigurður Hafsteinsson byggingatæknifræðingur, f. 3. ágúst 1959 að Boðaslóð 26. Kona hans Svava Aldís Viggósdóttir.
5. Júlíus Geir Hafsteinsson trésmiður, f. 1. janúar 1963 að Boðaslóð 26. Kona hans Margrét Herdís Guðmundsdóttir.
6. Þröstur Hafsteinsson blikksmiður, f. 20. janúar 1964. Kona hans Hrafnhildur Karlsdóttir.

Guðný lauk gagnfræðaprófi í Þinghólsskóla í Kópavogi 1972, varð stúdent í K.H.Í. 1977, lauk kennaraprófi 1981.
Hún var stundakennari á Kópavogshæli 1981-1982, í Hafnarskóla í Höfn í Hornafirði frá 1982. (1984).
Þau Jóhann giftu sig, eignuðust tvö börn hér nefnd.

I. Maður Guðnýjar er Jóhann Sveinsson viðskiptafræðingur, f. 15. mars 1955. Foreldrar hans Sveinn Finnsson lögfræðingur, f. 23. nóvember 1923, d. 7. júní 1993, og kona hans Sigríður Herdís Sigurðardóttir húsfreyja, f. 14. nóvember 1926.
Börn þeirra hér:
1. Elísa Jóhannsdóttir, f. 6. janúar 1978.
2. Hafsteinn Ævar Jóhannsson, f. 23. mars 1982.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Kennaratal á Íslandi. Ólafur Þ. Kristjánsson og fleiri. Prentsmiðjan Oddi 1958-1988.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.