Elín Vigfúsdóttir (Vesturholtum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Elín Vigfúsdóttir húsfreyja á Blómsturvöllum á Eyrarbakka, fæddist 16. júlí 1866 í Kolsholti í Villingaholtssókn í Flóa og lést 3. ágúst 1960 í Eyjum.
Faðir hennar voru Vigfús bóndi í Jaðarkoti í Villingaholtssókn 1870, f. 9. febrúar 1829, d. 11. janúar 1891, Þorvarðarsonar bónda í Jaðarkoti 1835, f. 21. september 1795, d. 18. september 1844, Oddssonar, og konu Þorvarðar, Margrétar húsfreyju, f. 1795, d. 18. janúar 1838, Vigfúsdóttur.
Móðir Elínar Vigfúsdóttur og kona Vigfúsar var Vilborg húsfreyja, f. 16. september 1827, d. 12. mars 1897, Jónsdóttir bónda í Súluholtshjáleigu, f. 1801, d. 24. febrúar 1887, Jónssonar, og konu Jóns í Súluholtshjáleigu, Kristínar húsfreyju, f. 1787, d. 11. mars 1868, Jónsdóttur.

Elín var með foreldrum sínum í Jaðarkoti í Villingaholtssókn 1870, var léttastúlka á Gneistastöðum í Hróarsholtssókn 1880, vinnukona í Merkigarði á Stokkseyri 1890. Hún kom að Blómsturvöllum úr Keldnasókn 1897.
Þau Jóhann Pétur giftu sig 1900, eignuðust þrjár dætur. Þau bjuggu á Blómsturvöllum á Eyrarbakka.
Jóhann lést 1920.
Elín flutti til Jónínu dóttur sinnar í Vesturholtum við Brekastíg 12 1924 og dvaldi hjá henni síðan.
Hún lést 1960.

I. Maður Elínar, (9. desember 1900), var Jóhann Pétur Hannesson bóndi, sjómaður á Eyrarbakka, f. 7. maí 1872, d. 6. apríl 1920. Foreldrar hans voru Hannes Jónsson bóndi á Efra-Hvoli í Hvolhreppi, Rang., f. 1832, og Jóhanna Ormsdóttir húsfreyja, f. 1832, d. 15. júní 1909.
Börn þeirra:
1. Elínborg Pétursdóttir húsfreyja á Heiðarbrún, f. 30. september 1903, d. 26. janúar 1993, kona Ísleiks Jónssonar bifreiðarstjóra.
2. Jónína Pétursdóttir húsfreyja í Vesturholtum við Brekastíg 12, húsfreyja, f. 31. ágúst 1906, d. 20. mars 1994, kona Ólafs R. Jónssonar .
3. Sigríður Guðmunda Pétursdóttir húsfreyja, f. 22. nóvember 1907, d. 10. maí 2000, kona Sigurðar Sveinssonar bifreiðastjóra og kaupmanns frá Sveinsstöðum.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.