Edvin Jóelsson
Fara í flakk
Fara í leit
Edvin Jóelsson fæddist 2. júní 1922 og lést 25. mars 1971. Hann bjó á Urðavegi 17 og Hásteinsvegi 6, Kiðjabergi. Foreldrar hans voru Jóel Eyjólfsson og Oktavía Einarsdóttir.
Edvin tók mótorvélstjórapróf 1941 og skipstjóranámskeið 1943 í Vestmannaeyjum. Fiskimannapróf tók hann frá Sjómannaskólanum í Reykjavík 1948. Hann var vélstjóri á Kára VE-27 og vélstjóri og stýrimaður á Kára VE 47. Skipstjóri á Álsey 1949-50, Emmu 1951, Helga Helgasyni 1952, var með Skaftfelling 1955-1957 í flutningum og síðast með Lagarfoss 1964. Vann síðast við fiskmat.
Óskar Kárason samdi formannavísu um Edvin:
- Jóels sonur Áls- með ey
- Edvins gegnir heiti,
- dregur í hið forna fley
- fisk úr djúpa reiti.
Óskar samdi seinna aðra vísu um hann:
- Þriðja skal njóta niðja
- nefna son Jóels, gefna.
- Edvin sá heitir svinnur,
- seggur, er Skafta leggur,
- hríð út í storma stríða,
- straumur þó æstur kraumi.
- Föng sækir fírinn löngum
- fíkinn til Reykjavíkur.
Myndir
Heimildir
- Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
- Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.
- Myndasafn Fanneyjar Ármannsdóttur.
- KG-mannamyndir 12111.