Berglind Andrésdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Ólafía Berglind Andrésdóttir frá Rvk, húsfreyja fæddist þar 16. janúar 1946.
Foreldrar hennar voru Andrés Andrésson frá Hemlu í V.-Landeyjum, klæðskeri í Rvk, f. 7. júní 1887, d. 23. október 1970, og kona hans Ingibjörg Stefánsdóttir frá Stakkahlíð í Loðmundarfirði, húsfreyja, f. 18. nóvember 1915, d. 9. apríl 1987.

Þau Össur giftu sig 1966, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu í Eyjum 1971-1978, bjuggu á Hólagata 45 1972, en lögheimil þeirra var við Bárustíg 6.

I. Maður Berglindar, (30. desember 1966), er Össur Kristinsson frá Dalvík, efnafræðingur, f. þar 1. júní 1945.
Börn þeirra:
1. Birgir Össurarson, á Dalvík, f. 24. september 1967 í Rvk. Kona hans Birna Björnsdóttir Blöndal.
2. Björg Össurardóttir, í Hafnarfirði, 22. maí 1971 í Þýskalandi. Maður hennar Einar Einarsson.
3. Sigrún Össurardóttir, á Akranesi, f. 22. ágúst 1979 á Akranesi.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1972.
  • Íslendingabók.
  • Verkfræðingatal. Ritstjóri: Þorsteinn Jónsson. Þjóðsaga ehf. 1996.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.