Aðalbjörg Stefanía Ingólfsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Aðalheiður Stefanía Ingólfsdóttir frá Skjaldþingsstöðum í Vopnafirði, húsfreyja fæddist 11. nóvember 1924.
Foreldrar hennar voru Ingólfur Eyjólfsson bóndi, f. 8. október 1876, d. 4. september 1938, og kona hans Elín Salína Sigfúsdóttir húsfreyja, f. 10. nóvember 1889, d. 26. júlí 1934.

Þau Páll giftu sig, eignuðust sjö börn. Þau bjuggu á Akureyri um skeið, en flutti til Eyja, bjuggu við Fífilgötu 5, við Vestmannabraut 76, við Heiðarveg 5, en síðan í Kópavogi.
Páll lést í trúboðsstarfi í S.-Afríku 1981.

I. Maður Aðalheiðar var Páll Lúthersson klæðskerameistari, trúboði, f. 20. október 1926 á Eskifirði, d. 25. maí 1981.
Börn þeirra:
1. Ingimar Pálsson tónlistarmaður, kennari, f. 14. mars 1945 á Akureyri.
2. Elín Pálsdóttir húsfreyja, f. 11. febrúar 1949.
3. Arnbjörg Pálsdóttir húsfreyja, f. 17. mars 1951. Maður hennar , skildu, Helgi Jósefsson Vápni, látinn.
4. Lúther Pálsson rafvirki, leigubílstjóri í Kópavogi, f. 2. júní 1953 á Fífilgötu 5. Barnsmæður hans Ragna Benedikta Gísladóttir, Hjördís Bech Ásgeirsdóttir. Kona hans Áslaug Björg Hrólfsdóttir.
5. Pála Björg Pálsdóttir húsfreyja, verkakona, f. 7. október 1957 í Eyjum. Maður hennar Kristján Egilsson.
6. Páll Elfar Pálsson, f. 27. nóvember 1962.
7. Sesselja Kristín Pálsdóttir, f. 28. júlí 1965.



Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Íslendingaþættir Tímans 1. júlí 1981. Minning Páls.
  • Morgunblaðið 10. júní 1981. Minning Páls.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.