Þóra Hannesdóttir (Brimhólum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Þóra Hannesdóttir.

Þóra Hannesdóttir frá Brimhólum, húsfreyja, verslunarmaður, vinnukona, saumakona fæddist 2. júní 1919 á Steinsstöðum og lést 6. febrúar 2000 á Sjúkrahúsi Reykjavíkur.
Foreldrar hennar voru Hannes Sigurðsson frumkvöðull, ráðsmaður, skipstjóri, bóndi, verslunarstjóri, f. 16. ágúst 1881 á Seljalandi u. V.-Eyjafjöllum, d. 14. febrúar 1981, og kona hans Guðrún Jónsdóttir húsfreyja, f. 24. maí 1884 á Bakka í A.-Landeyjum, d. 5. maí 1976.

Börn Guðrúnar og Hannesar:
1. Jón Hjaltalín Hannesson rafvirki, vélstjóri, f. 20. júní 1912 á Lögbergi, d. 26. nóvember 2017.
2. Guðný Marta Hannesdóttir saumakona, f. 28. júní 1913 á Hjalla, d. 15. júlí 2011.
3. Hálfdán Hannesson bifvélavirki, f. 4. október 1914 á Hjalla, d. 12. febrúar 2011.
4. Ragnheiður Hannesdóttir húsfreyja, f. 12. október 1915 á Hjalla, d. 5. mars 2015.
5. Elínborg Hannesdóttir hattagerðarkona, saumakona, f. 23. ágúst 1917 á Hjalla, d. 19. maí 2010.
6. Þóra Hannesdóttir húsfreyja, saumakona, f. 2. júní 1919 á Steinsstöðum, d. 6. febrúar 2000.
7. Sigurður Hannesson, f. 21. apríl 1922 á Steinsstöðum, d. 28. apríl 1922.

Þóra var með foreldrum sínum.
Hún vann við fiskiðnað uns hún flutti til Reykjavíkur 17 ára. Þar vann hún um skeið í regnhlífagerðinni og var síðan vinnukona. Síðar vann hún við saumaskap. Hún hóf störf við matvöruverslun Guðjóns manns síns 1961. Þau fluttu hana að Valargerði 40 í Kópavogi og stunduðu reksturinn til 1985.
Þau Guðjón giftu sig 1943, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu síðast í Vallargerði 40 í Kópavogi.
Elínborg lést árið 2000 og Guðjón 2003.

I. Maður Þóru, (2. október 1943), var Guðjón Aðalsteinn Guðmundsson kaupmaður, f. 6. janúar 1921, d. 30. desember 2003. Foreldrar hans voru Guðmundur Guðjónsson frá Efra-Seli í Stokkseyrarhreppi, kaupmaður, f. 19. júní 1894, d. 3. september 1961, og kona hans Anna María Gísladóttir úr Reykjavík, f. 18. mars 1893, d. 10. apríl 1981.
Börn þeirra:
1. Gísli Hannes Guðjónsson yfirréttarsálfræðingur við Lundúnaháskóla, f. 26. október 1947. Kona hans Julia Guðjónsson.
2. Guðmundur Guðjónsson yfirlögregluþjónn hjá Ríkislögreglustjóra, f. 26. október 1947. Kona hans er Tove Bech.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.