„Valgerður Hallsdóttir (Presthúsum)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Valgerður Hallsdóttir''' frá Presthúsum fæddist 20. febrúar 1793 og lést 22. júní 1863.<br> Foreldrar hennar voru Hallur Eiríksson...)
 
m (Verndaði „Valgerður Hallsdóttir (Presthúsum)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 24. mars 2014 kl. 15:42

Valgerður Hallsdóttir frá Presthúsum fæddist 20. febrúar 1793 og lést 22. júní 1863.
Foreldrar hennar voru Hallur Eiríksson bóndi í Presthúsum, f. 1762, 19. mars 1804, og kona hans Snjófríður Magnúsdóttir húsfreyja, f. 1752.
Valgerður lifði ein 6 barna foreldra sinna.
Hún var með foreldrum sínum í Presthúsum 1801, vinnukona á Vilborgarstöðum 1816, bústýra Ólafs Erlendssonar við giftingu í Elínarhúsi 1827.
Hún kom 42 ára ekkja úr Holtasókn 1835, var 42 ára ekkja og vinnukona á Búastöðum 1835, 47 ára ekkja og vinnukona á Fögruvöllum 1840, 53 ára vinnukona í Hólmfríðarhjalli 1845, 58 ára niðursetningur í Presthúsum 1850 og í Nöjsomhed 1855, 64 ára niðursetningur í Godthaab 1857, 68 ára niðursetningur á Búastöðum 1860.
Valgerður lést 1863.

Maður hennar, (18. janúar 1827), var Ólafur Erlendsson, ( „Ellisson“) tómthúsmaður í Elínarhúsi 1827, horfinn fyrir skráningu 1835. Þá var Valgerður skráð ekkja. Hann finnst ekki í Eyjum eftir giftingu og ekki brottfluttur og hún finnst ekki í Holtssókn.
Börn finnast ekki fædd í Eyjum.


Heimildir