Stefanía Hannesdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. október 2006 kl. 11:50 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. október 2006 kl. 11:50 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Stefanía Guðrún Hannesdóttir fæddist 16. febr. 1871 að Austari-Krókum í Fnjóskadal í Suður Þingeyjarsýslu og lézt í Reykjavík 25. júlí 1953.
Foreldrar hennar voru Hannes bóndi í Austari-Krókum, f. 31. ágúst 1840, d. 2. júlí 1911............Móðir Stefaníu var Hólmfríður, f. 29. ágúst 1830, d. 7. febr. 1915, Árnadóttir bónda í Austari-Krókum Einarssonar.
Stefanía Guðrún lauk ljósmæðraprófi 2. júní 1904; fór til Danmerkur 1905 og stundaði framhaldsnám við ljósmæðraskóla í Kaupmannahöfn 1906-1907, lauk prófi þaðan 27. ágúst 1907.
Hún var ljósmóðir í Öngulstaðahreppsumdæmi í Eyjafirði 1904-1905; Húsavíkurumdæmi 1908-1924, er hún flutti til Eyja. Þar var hún starfandi ljósmóðir 1924 fram um 1948. Þau Hjörleifur fluttust í Kópavog 1948.
Maki (6. ágúst 1921): Hjörleifur Sigurjónsson, f. 25. okt. 1872, d. 5. júní 1954.
Barn (kjörbarn): Björg Sigurveig, f. 24. júní 1920, búsett í Kópavogi. Maki: Hílmar Árnason, d. 1991.

Heimildir:

  • Ljósmæður á Íslandi.
  • pers.
  • Garður.is.