Stefán Gíslason (Ási)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 23. september 2013 kl. 12:09 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 23. september 2013 kl. 12:09 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Stefán Gíslason.

Stefán Gíslason athafnamaður frá Hlíðarhúsi fæddist 6. ágúst 1877 og lést 11. janúar 1953.
Foreldrar hans voru Gísli Stefánsson kaupmaður í Hlíðarhúsi og kona hans Soffía Lisbeth Andersdóttir húsfreyja.
Stefán var kunnur af bjargferðum sínum. Hann lagði t.d. veginn upp á Eldey í lok maí 1894 ásamt Ágústi bróður sínum og Hjalta Jónssyni (Eldeyjar-Hjalta) og ruddi þar með braut súluveiðiferðum þangað.
Hann var útgerðarmaður og formaður um skeið á Farsæl og Lísebet.
Hann varð fyrstur til að vinna að eiginlegri bakaraiðn í Eyjum, kom upp köku- og brauðgerðarhúsi skömmu eftir aldamótin 1900 og rak bakarí í Ási, sem hann hafði reist 1903.
Veitingasölu kom hann upp á Sigríðarstöðum í Stórhöfða og rak.
Kona Stefáns (1899) var Sigríður Jónsdóttir frá Mandal, f. 27. apríl 1878, d. 3. desember 1941.
Börn þeirra voru:
1. Gústaf Stefánsson, f. 22. ágúst 1899, d. 24. janúar 1943.
2. Jón Ingimundarson Stefánsson, f. 12. maí 1904, d. 6. júní 1969.
3. Guðmundur Stefánsson, f. 20. júní 1905, d. 31. ágúst 1980.
4. Stefanía Stefánsdóttir, f. 1. júní 1907, d. 1. maí 1924.
5. Gísli Stefánsson, f. 12. janúar 1912, d. 7. september 1987.
6. Anders Stefánsson, f. 29. nóvember 1916, d. 3. september 1981.
7. Árni Stefánsson, f. 11. október 1919, d. 8. mars 1994.
8. Ágúst Stefánsson, f. 8. ágúst 1923, d. 28. mars 2012.
9., 10, 11. Þrjú börn látin fyrir 1910.


Heimildir