Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 2003/ Jómsborgarfeðgar, formenn í fjóra ættliði

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. febrúar 2017 kl. 12:47 eftir Karibjarna2 (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. febrúar 2017 kl. 12:47 eftir Karibjarna2 (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
HELGI BERNÓDUSSON



Jómsborgarfeðgar


— formenn í fjóra ættliði —



Íslendingafundur í Lapplandi. „Hún er komin, danska konan sem við sögðum þér frá, — manstu ekki, frá Vestmannaeyjum?“ „Ha? Hver?“
Ég sat niðursokkinn í verkefni, með sumarsólina á glugganum í skrifstofu minni í virðulegu og gömlu húsi við Kirkjustræti í miðbæ höfuðborgarinnar. Þetta var sumarið 2001, fyrir tveimur árum. — „Ég kem niður í anddyri.“
Þrjár samverkakonur mínar höfðu haustið áður farið á merka ráðstefnu í Rovaniemi í Finnlandi, eða raunar í Lapplandi, sem liggur á norðurheimskautsbaugnum, til að fræðast um lagamál, þýðingar og skjalaútgáfu. Lex et lingua (lög og tunga) var yfirskriftin. Þetta var fjölmennt mót sérfræðinga úr mörgum heimshornum, norrænir menn og fólk úr höfuðstöðvum Evrópusambandsins í Brussel og Lúxemborg. Þær stöllur héðan héldu hópinn, svo sem von er um Íslendinga, en brátt fór að sækja í félagsskap þeirra kona ein frá Lúxemborg, nett og treffileg, hún hét Eva, var Dudzinska að giftingarnafni, pólskt. Eva sagði að sér liði vel innan um Íslendinga því að sjálf væri hún hálfur Íslendingur. „Ha?“ Alltaf jafn spennandi að hitta Íslendinga í útlöndum, jafnvel þó að þeir séu hálfir (í einhverjum skilningi). — Jú, móðir hennar var íslensk, fædd á Íslandi, átti íslenskan föður og danska móður. Fædd í Vestmannaeyjum! „Ja, hvað er að heyra, þetta þurfum við að segja honum Helga þegar við komum heim!“ Þær vinkonur mínar, Finnlandsfarar, létu ekki undir höfuð leggjast að greina frá þessu vestmanneyska kyni sem þær höfðu fundið í Lapplandi, en ekki festist það þó mjög í minni. Þær héldu sambandi við Evu, vinkonu sína í Lúxemborg, sem puðaði þar við þýðingar á flóknum reglum ESB úr mörgum málum á mörg mál, og samkvæmt jólakorti frá henni var ekki útilokað að hún kæmi í heimsókn á næsta sumri, kannski með hana mömmu gömlu, hana langar svo að sjá Ísland, og sérstaklega Vestmannaeyjar, einu sinni enn, hálfníræða konuna. Og svo varð. Þær stóðu þarna í anddyrinu, Eva frá Lúxemborg með börn sín tvö og tvö systurbörn, og svo móðir hennar. Hún bar aldurinn vel, var snotur kona og svipmikil. Ég heilsaði henni, hún hafði krepptan fingur á hægri hendi, og það brá fyrir einhverjum svip sem ég kannaðist við. Hún talaði bara dönsku, fáein orð kunni hún þó í íslensku. Greta Thisted hét hún. „Og þú ert úr Vestmannaeyjum?“ spyr ég gömlu konuna.
„Ja, ég er fædd þar, það var 1916, en ég fór þaðan fjögurra ára gömul árið 1920 til Kaupmannahafnar, hef verið þar síðan, í 80 ár. En ég man enn ýmislegt frá Vestmannaeyjum.“
Hún spurði mig hvort ég væri úr þessum eyjum. „Já, það er svo!“
„En gaman, ég hef komið tvívegis til Vestmannaeyja síðan við fórum þaðan mæðgur 1920, í fyrra sinnið 1946, eftir stríðið, og svo 1996, á áttræðisafmæli mínu. Í fyrri ferðinni hitti ég föður minn. Hann hét Þorsteinn Johnson.“
„Nei. hvað segirðu, bóksali? Ég man hann vel, virðulegan mann við Garðhús, á dökkum fötum með vesti, þar sem hann vappaði í kringum bókabúðina sína.“
„Hvað, ungi maður, manst þú föður minn?“
„Ja, heldur betur, hann var oft í Garðhúsum hjá systur sinni, Kristínu, sem var gift Jóni Waagfjörð bakara, „Vogsa“ sem við kölluðum svo (ættarnafnið dregið af Vogsósum). Stáki, sonur þeirra (Jón samkvæmt kirkjubókum), átti þar heima á efri hæðinni og Kristinn sonur hans er æskuvinur minn. Ég þekkti í því stóra húsi hverja vistarveru og var þar uppi um öll rjáfur; þvældist um niðri í bakaríi sem var í kjallaranum; stundum vorum við Kristinn settir á tvíbökuvélina til að létta undir, við sátum þá andspænis hvor öðrum og stigum sitt sagarhjólið hvor og mötuðum vélina með brauðbollum en sögin, sem við drógum, skar í sundur bollurnar sem voru svo bakaðar á ný, sannkallaðar tvíbökur!“
Hún sagðist muna Kristínu, föðursystur sína, vel og Jón, mann hennar, duglegan mann, sem fékk sér stundum í staupinu eins og margir fleiri góðir menn; þau komu nokkrum sinnum í heimsókn til Danmerkur þar sem Jón Waagfjörð var lengi við nám og störf (málari) á yngri árum.
„Sæmundur, föðurbróðir minn, bjó þarna skammt frá“ sagði Greta. „Já, já, ég hef heyrt um hann en ég man hann ekki, en Guðbjörgu konu hans man ég. Þau bjuggu á Gimli; þar var mjólkurbúð á jarðhæðinni.“ Og svo bætti ég við: „Systir mín, Elínborg, býr þar núna!“
„Ja, hérna! Manstu kannski eftir honum Óskari, bróður mínum?“
„Honum Óskari í Bókabúðinni! Ég er nú hræddur um það, hafði hann fyrir augunum á hverjum degi alla mína bernsku. Við krakkarnir vorum eins og gráir kettir í búðinni hjá honum eða lágum á búðargluggunum, og stundum stóð hann, einkum í góðviðri, í búðardyrunum í kringum hádegið og fylgdist með mannaferðum, fólki, sérstaklega ungum skvísum, á leið úr eða í vinnu. Við bjuggum rétt hinum megin við götuna. Kristinn, sonur hans („Diddi í Bókabúðinni“), var einkavinur Birgis, bróður míns heitins.“
„Ja, hvur röndóttur“ sagði konan upp á dönsku. Og dóttir hennar, Eva, og barnabörn voru orðin nokkuð langleit meðan stóð á þessum fundi ömmu við fortíðina og blauta bernsku hennar í Vestmannaeyjum fyrir 80 árum, svona óralangt í burtu í tímanum. En þau fundu samt að hún hafði hitt á réttan mann! Það fannst þeim gott.

Hver er þessi danska kona? En hver var þessi kona? Greta Thisted heitir hún og er fædd í Vestmannaeyjum árið 1916, 17. júlí, dagstætt ári yngri en Óskar bróðir hennar. Foreldrar hennar voru Þorsteinn Johnson, sem kallaði sig svo, hann var Jónsson eins og síðar verður að vikið, og Anna Margrethe Madsen, kona hans. Sennilega hafa þau kynnst í Danmörku þar sem Þorsteinn var við nám og störf. Þau fluttust til Íslands árið sem fyrri heimsstyrjöldin hófst, 1914, giftu sig og eignuðust þrjú börn. Elstur var Óskar Emanúel Þorsteinn, fæddur 1915, síðan Greta, fædd 1916, og loks Þorsteinn, fæddur síðla árs 1917. Þau hafa sjálfsagt verið ólík, hjónin, hún sjö árum yngri en hann, og erfitt fyrir unga konu úr Kaupmannahöfn, rétt rúmlega tvítuga, að setjast að í Vestmannaeyjum á árum fyrri heimsstyrjaldar og eftir hana og búa með tengdaforeldrum sínum með þrjú ung börn. Vestmannaeyjar hafa varla náð hátt á umgengnis- og þrifnaðarskölum Kaupmannahafnar. Margrét bjó við ágæt efni í Höfn, faðir hennar, Emanuel Madsen, var umsvifamikill matreiðslumaður, lést 1920, en móðir hennar lifði til 1936. Hún hafði sjálf lært „nútíma-matargerð“ en aldrei komið nálægt börnum. Það er því líklegt að þrjú börn á skömmum tíma, sambúð með tengdaforeldrum, tungumálaerfiðleikar, söknuður eftir ættingjum og vinum, hafi reynst skapmikilli konu ofraun. Greta segir að sér sé í barnsminni, innan við tveggja ára aldur, þegar hún lá í hálsbólgu og lék sér með vasaklúta(!) — ekki var leik-föngum fyrir að fara — að hafa séð móður sína hálfærast yfir því að geta ekki kveikt eld á prímusnum sem þau notuðu til að hita vatn. En Greta segir að hún hafi sótt sér skilning og traust hjá Dönum sem bjuggu í bænum. Þorsteinn í Jómsborg og Halldór Gunnlaugsson læknir voru góðir vinir, voru oft á fiskiríi saman. Margrét átti trúnaðarvini í frú Önnu Gunnlaugsson og Ellu Therp, systur hennar, sem dvaldist í Eyjum um tíma. Greta segist muna vel þegar þær mæðgur voru að koma frá frú Gunnlaugsson. stundum seint um kvöld og í myrkri, hún var svo hrædd við skuggaverur, sauðfé, hunda og ketti! Ella Halldórsdóttir (Gunnlaugssonar), sem lifir í hárri elli í Reykjavík, segist muna Margréti vel, sérstaklega hvað hún var mikill spíritisti! „Indælis manneskja, en lifði mjög spart.“ Vinskapurinn við frú Önnu Gunnlaugsson hélst lengi.
Betri samgöngur voru milli Eyja og Kaupmannahafnar á þessum tíma en síðar, flest millilandaskip sem sigldu til Íslands frá meginlandinu, skip Eimskipafélagsins og Sameinaða gufuskipafélagsins, komu við í Eyjum. Og e.t.v. hafa þau hjón, Margrét og Þorsteinn, brugðið sér utan þessi árin. Þannig segir Greta að móðir sín hafi farið utan snemma árs 1918 með yngsta barn sitt, Þorstein, dvalist þar um tíma, látið skíra barnið, en komið svo aftur „heim“. Greta var hjá föður sínum og afa og ömmu í Jómsborg á meðan og man það vel. Nema hvað, tveimur arum síðar, 1920, fer Margrét enn til Kaupmannahafnar með börn sín. Hjónabandinu var slitið. Óskar er þá 5 ára. Sú saga lifir með afkomendum hans að hann hafi ekki tekið í mál að fara utan, hann fór í felur og fannst ekki meðan millilandaskipið lá fyrir utan Eiðið. Og fór aldrei. Greta man „eins og það hefði gerst í gær“ þegar hún prílaði eftir kaðalstiganum upp í þetta stóra skip úti á „reginhafi.“ Hún man þegar þau sigldu fram hjá Krónborgarhöll á NorðurSjálandi og hún benti á trén og spurði á íslensku: „Hvað er þetta?“ Hún tapaði svo íslenskunni, gekk í fyrstu illa að læra dönsku og man nú lítið frá næstu tíu árum ævinnar. — Ætli þetta komi svo mjög á óvart? „Þetta var gífurlegt sjokk; skilnaður foreldra og nýtt og framandi umhverfi“ segir hún.
Margrét, móðir hennar, bjó í Kaupmannahöfn upp frá því, dó 1976, hálfníræð. Hún giftist aldrei aftur — „þrátt fyrir mörg bónorð“ segir Greta! Hún talaði aldrei um 'Íslandsárin við börn sín, en virtist enn hafa sterkar taugar til Þorsteins, eiginmanns síns fyrrverandi, bar árum saman þungan harm í brjósti, „grét oft“ segir Greta. Ættmenni hans, systkini og vinir, heimsóttu hana æ síðan í Kaupmannahöfn, ef við varð komið, og hún tók því fólki öllu vel. Hún var ströng, segir Eva, barnabarn hennar, en létt og skemmtileg, „aldrei leiðinlegt í kringum hana“. Rúmri hálfri öld eftir að hún fór frá Eyjum, haustið 1973, eftir eldgosið á Heimaey, tók hún sig upp og heimsótti son sinn, Óskar, og ættingja á Íslandi. Það hafa verið stórir dagar hjá henni, þótt ýmsir erfiðleikar í fjölskyldunni hér á landi skyggðu á.
Greta og maður hennar áttu sumarhús og þangað var farið nærri um hverja helgi, og oftast var gamla konan með. Dag einn um miðjan júní 1959 voru þau sem endranær á ferðinni í sumarbústaðinn. Sú gamla sat í aftursætinu, djúpt hugsi. Svo sagði hún um síðir við dóttur sína að sig hefði dreymt undarlegan draum nóttina áður. Hún var með giftingarhring sinn og hann hafði brotnað á tveim stöðum. „Það eru tvö síðari hjónabönd föður þíns. Nú er hann látinn, og hugsar til mín.“ Þegar fjölskyldan kemur á ný í bæinn eftir stutta dvöl er hringt dyrabjöllu heima hjá Gretu kl. 11 um kvöld. Úti stóð sendill með símskeyti frá Íslandi: „Faðir okkar er látinn. Kveðja, Óskar.“
Greta ólst upp með móður sinni í Kaupmannahöfn ásamt Þorsteini bróður sínum. Jon Thorsteinn Johnson er fæddur 3. des. 1917. Hann kom líka til Íslands, fyrst sem unglingur 1934 þegar hann var hér sumartíma, bjó hjá Sæmundi föðurbróður sínum á Gimli og var látinn vinna á stakkstæði. Hann fékk enn fremur að vera í Reykjavík, á Laugavegi 32 hjá Sigríði afasystur sinni og Tómasi kjötkaupmanni Jónssyni. Hann hefur komið nokkrum sinnum til Íslands síðar. Hann nam sem ungur maður búfræði og starfaði við það í Danmörku, lengst við matvælaeftirlitið. Tim Thorsteinn Johnson, einkasonur hans, er sjónvarpsstjóri á Jótlandi; hann á eitt barn. Þorsteins er getið í ritinu „íslenskir búfræðikandídatar“ frá 1974.
Greta Johnson giftist og varð Thisted, maður hennar, Borge, var lögmaður, málafærslumaður við landsréttinn, og þau voru í ágætum efnum. Hann lést fyrir nokkrum árum, 1989. Þau eignuðust þrjár dætur. Auk Evu (sem er fædd 1949) eru það Jette, fædd 11. apríl 1940, tveim dögum eftir innrás Þjóðverja í Danmörku, og Anne-Dot, fædd 1943. Eldri dætur hennar tvær létust á ungum aldri, önnur tveggja barna móðir, hin þriggja, og tengdasynir Gretu létust tveir fyrir aldur fram, maður Evu á síðasta ári, en maður Jettu þegar árið 1970. Börn Jettu, sem hingað komu tvö í hittiðfyrra með ömmu sinni, höfðu misst báða foreldra sína á barnsaldri. Barnabörn Gretu eru sjö og barnabarnabörn fimm. Ég spurði Evu á dögunum í tölvuskeyti hvað væri af móður hennar að frétta því að sú gamla svaraði ekki síma. Hún hefur verið úti að spila bridge, en annars er „min mor stadig ... frisk som en havörn" — og á þrjú ár fátt í nírætt!
Óskar hafði samband við móður sína í Danmörku eins og tök voru á á þessum tíma, með bréfaskiptum, en hann ólst upp hjá afa sínum og ömmu í Jómsborg. Kært hefur verið með þeim mæðginum og svo mikið er víst að dóttir Óskars hlaut nafn ömmu sinnar og heitir Margrét („Búbba“, búsett í Bandaríkjunum). Og á fullorðinsárum heimsótti gamla konan Óskar, son sinn, hingað til lands, eins og áður segir. Það var í fyrsta og eina sinn sem Kristinn Óskarsson, sem sagði mér frá, sá ömmu sína.

Gamlar minningar úr Eyjum. Greta kom, eins og áður sagði, að loknu seinna stríði til Íslands og gisti hjá Óskari og Siggu á Hilmisgötunni. Það var henni mikið mál að kynnast á ný föður sínum og bróður. Þorsteinn sótti dóttur sína til Reykjavíkur og þau komu með Stokkseyrarbát út í Eyjar. Þau gengu mikið um eyna þetta sumar og upp á fjöll. Greta minnist notalegra stunda með föður sínum, t.d. þegar þau sátu í makindum í gígskálinni í Helgafelli og drukku ananassafa úr dós! Hún ferðaðist líka um Ísland og kynntist frændfólki sínu.
En það eru þó þessar undarlega skýru minningar Gretu um fjögur fyrstu ár ævinnar, 1916-1920, sem athygli vekja. Hún man vel afa sinn og ömmu í Jómsborg, en fátt af samkiptum við þau. Hún man þjóðhátíð í Herjólfsdal þar sem legið var í tjöldum, „við máttum ekki fara frá tjaldinu og vorum hrædd við fullu karlana“! Ekki síst eru minningabrotin frá leikvelli bernskunnar athyglisverð, frá Jómsborg og umhverfinu þar (hét þá Heimatorg, áður Krossgötur). Það er nú allt horfið undir hraun og gjall og lifir aðeins í myndum og minningum.
„Ég man“ skrifar hún „að það var mikið af fiski breitt til þerris fyrir framan hjá okkur.“ Og það stendur heldur betur heima því að á flötinni sunnan við Edinborg, norðan og vestan Jómsborgar, voru stakkstæði og þar var saltfiskur sólþurrkaður í stórum flekkjum eins og sjá má af myndum. Svo var árum saman, og Rafveituhúsið var ekki reist þarna á stakkstæðinu fyrr en eftir seinna stríð. „Ég var tveggja ára. Eg gekk niður tröppurnar í Jómsborg og faðir minn leiddi mig. Eg hélt í hægri hönd hans“ segir hún. Þetta er 1918 og hún heldur áfram: „Við gengum beint út. Til vinstri við okkur voru breiður af fiski sem var verið að þurrka. Ég man að hann skildi mig eftir augnablik því að hann þurfti að kasta af sér vatni. Svo sneri hann við og kom aftur til mín. Svo hitti hann einhvern vin sinn og talaði við hann. Ég man ekki hvert við vorum að fara, fórum til vinstri og því sennilega til Emmu sem ég lék mér við hvern einasta dag.“ „Emmu?“
„Já, Emma var vinkona mín. Hún átti heima í Tungu, bakaríinu. Þegar maður kom inn frá götunni lá stiginn upp á 2. hæð beint við. Okkur þótti svo gaman uppi því að þarna við stigaopið var baðherbergi með baðkeri! Og dag einn fylltum við baðkerið svo að út úr flóði og vatnið rann niður stigann. Þá heyrðist heldur betur í fullorðna fólkinu og við fengum skammir! Og við urðum hræddar og skömmuðumst okkar.“
Og enn kemur Emma við sögu. Þær leiksystur frá Eyjum hittast á Ráðhústorginu í Kaupmannahöfn 1922. „Faðir Emmu var í Struer á Jótlandi en með henni var kona sem passaði hana. Sú var alltaf að prjóna!“ Þetta hafa verið gleðilegir endurfundir leiksystra.
En hver var þessi Emma? Hver var faðir hennar í Tungu? Hvaða kona var að „passa“ hana?

Útúrdúr: Reyndal bakar og gerir út.
Árið 1912 fluttist til Eyja frá Bolungarvík danskur maður, Jóhann Pétur Sörensen, kallaði sig síðar Reyndal og var bakari. Hann fór á hausinn fyrir vestan en var ekki á því að gefast upp. Honum var ekki fisjað saman, fæddur í Árósum 1878, munaðarlaus varð hann barn að aldri en lærði bakaraiðn og fór til Íslands um aldamót, tvítugur að aldri.
Skömmu eftir að hann kemur til Eyja lætur hann, með aðstoð mágkonu sinnar, byggja steinhús, eitt hið stærsta og myndarlegasta í bænum, og kallaði það Tungu, en við þekkjum það betur sem Berg (Hótel Berg) eða Magnúsarbakarí, stóð við Heimagötu 4. Þar lét Reyndal setja upp bakarí með nýjustu tækjum. Hann var duglegur og reksturinn gekk vel. Reyndal tók þátt í útgerðarævintýrinu í Eyjum á þessum tíma, lét Jens Andersen (bróður Danska-Péturs) smíða fyrir sig vélbátinn Goðafoss árið 1916 (gekk fyrst vertíðina 1917) og tveimur árum síðar lét hann smíða Emmu á Ísafirði (kom um páskana 1919). Með Goðafoss var Árni Þórarinsson frá Oddsstöðum, ungur formaður og einn þeirra fyrstur sem réri með net. Hann var aflakóngur vertíðirnar 1918 og 1920. Emma var sú sem síðar komst í eigu Eiríks Ásbjörnssonar (og hann var löngum kenndur við). Halldór Magnússon, sem hefur skrifað um Reyndal „afa sinn,“ segir að um tíma hafi hann gert út þrjá báta.
Jóhann og kona hans, Halldóra Kristjánsdóttir, gátu ekki eignast barn. Fyrst tóku þau og ættleiddu Dóru (Halldóru Valdimarsdóttur), meðan þau bjuggu í Bolungarvík, en móðir hennar hvarf þar sporlaust er hún var þriggja ára gömul. Dóra varð síðar kona Magnúsar Bergssonar bakara, dó 1942. En eftir að þau hjón fluttust til Eyja tóku þau annað barn, Emmu, sem var dóttir Höllu Guðmundsdóttur og Guðjóns Eyjólfssonar, útvegsbónda á Kirkjubæ, 12. barn þeirra af 14 (fimm dóu í æsku). Þau Guðjón og Halla bjuggu í Norðurbænum þar sem Magnús Pétursson bjó síðast. Svo brátt var þeim hjónum, Jóhanni og Halldóru, að fá Emmu að þegar