Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1964/ Kafari við Vestmannaeyjahöfn í 25 ár: 1927-1952

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 24. febrúar 2016 kl. 14:36 eftir Kristinsigurlas (spjall | framlög) Útgáfa frá 24. febrúar 2016 kl. 14:36 eftir Kristinsigurlas (spjall | framlög) (Ný síða: <big><big><center>Kafari við Vestmannaeyjahöfn</center></big></big><br> <big><center>í 25 ár 1927-1952</center></big><br> (Þorsteinn Þ. Víglundsson, skólastjóri, hefur n...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Kafari við Vestmannaeyjahöfn


í 25 ár 1927-1952


(Þorsteinn Þ. Víglundsson, skólastjóri, hefur nokkrum sinnum minnzt á það við mig, að ég segði honum ýmislegt varðandi vinnu mína við kafarastörf í Vestmannaeyjahöfn um 25 ára skeið. Satt að segja finnst mér skólastjórinn eiga þetta fyllilega skilið, því að hann hefur verið óþreytandi að bjarga frá gleymsku fróðleik um Eyjarnar, sem birzt hefur í skólaritinu Bliki, er á vaxandi vinsældum að fagna með Eyjamönnum og landsmönnum yfirleitt. — Sannarlega á ég margar ánægjulegar minningar frá þessum árum. Eg kynntist þarna tugum ágætismanna, sem unnu á flekanum með mér, og verkstjórarnir voru undantekningarlaust afbragðsmenn og vel vaxnir sínu starfi. — Við höfum kosið að hafa þetta í viðtalsformi. F.F.).

Hvar ertu fæddur, Friðfinnur? Segðu mér í fáum dráttum frá uppruna þínum.
Ég er fæddur á Stóruborg undir Eyjafjöllum 22. des. 1901. Þar bjuggu foreldrar mínir, Finnur Sigurfinnsson og Ólöf Þórðardóttir. Þau áttu 13 börn. Af þeim dóu 6 í æsku en 7 komust til manns. Faðir minn drukknaði 16. maí 1901 með Birni frá Skarðshlíð, þegar Eyjafjallaskipið Björgúlfur fórst við Klettsnef og 27 manns drukknuðu, en einn maður komst af, Páll Bárðarson frá Rauðafelli. Mun það mesta sjóslys við Eyjar.
Hvenær fluttist þú til Eyja?
Það var í maí 1905. Þá fluttist móðir mín til Eyja með okkur bræðurna, Finnboga og mig. Fór hún þá vinnukona að Brekkhúsi til þeirra hjóna Sigurbjargar Sigurðardóttur og Sigurðar Sveinbjarnarsonar. Finnboga bróður mínum var komið fyrir í Eystra-Þorlaugargerði hjá þeim kunnu hjónum Rósu Eyjólfsdóttur og Jóni Péturssyni. Eftir 2 ár fluttist móðir mín frá Brekkhúsi niður í bæinn með Finnboga bróður minn og settist þar að. Ég varð eftir í Brekkhúsi hjá þeim heiðurshjónum til 24 ára aldurs.
Hvenær hófst svo köfunarstarf þitt við hafnargerðina?
Ég hóf það starf 12. ágúst 1927.
Ekki munt þú hafa verið sá fyrsti, sem hér innti af höndum kafarastörf eða hvar kynntist þú þessu starfi?
Aður en ég gerðist kafari, hafði verið unnið að því tvö sumur að jafna botninn, þar sem sökkva átti steinkerjum þeim, er mynda undirstöður hafnargarðanna.
Það kafarastarf gjörði Matthías Finnbogason smiður að Litlhólum hér í bæ. En sumarið áður en ég tók til við kafarastörfin, hafði verið fenginn hingað kafari frá Stokkseyri. Hann hét Ásgeir Jónasson. Hann andaðist hér síðsumars 1926, og var því um kennt, að hann hefði ekki þolað kafarastörfin.
Gerðu nú svo vel að tjá lesendum Bliks, hvernig það atvikaðist, að þú gerðist kafari.
Það vil ég gjarnan gera. Í júnímánuði 1927 hafði þáverandi bæjarstjóri, Kristinn Ólafsson, látið setja auglýsingu í auglýsingakassa bæjarsjóðs, sem hékk á austurgafli verzlunarhússins Þingvellir. Hún var þannig orðuð:
„Kafari óskast strax til vinnu við dýpkun hafnarinnar. Hátt kaup í boði.“ Þegar ég hafði lesið þessa auglýsingu, tók ég til að velta því fyrir mér, hvort ég mundi geta innt af hendi þetta verk. — Nokkru síðar mætti ég Kristni bæjarstjóra á götu. Eg innti hann eftir því, hvort hann væri búinn að ráða kafara handa höfninni. Hann kvað það ekki vera. „Þú ættir að koma í þetta starf. Þú ert einmitt rétti maðurinn þar,“ sagði bæjarstjóri. Þessi traustsyfirlýsing hans hvatti mig, og áður en við skildum, hafði ég heitið honum því að reyna starfið.
Sumarið 1927 fékk hafnarnefnd Vestmannaeyja til afnota danska sanddæluskipið Uffe, sem ríkisstjórnin hafði tekið á leigu. Með þessu dýpkunarskipi var framkvæmt mikið og gott starf hér við Vestmannaeyjahöfn. T. d. dældi það upp hinum svokallaða Hnykli við hafnarmynnið, en það var sandrif í innsiglingunni, hinn versti farartálmi og hættuvaldur, því að á því braut strax og hreyfði sjó. En steinrif eða stórgrýtisurð lá á milli hausanna á hafnargörðunum, og við það gat skipið ekkert átt. Hafði engin tæki til þess. Alls var talið, að Uffe hefði dælt upp 24072 rúmmetrum af sandi upp úr innsiglingunni og höfninni þetta sumar. Skipið var hér að verki mánuð eða tæplega það. Jafnframt þessum dýpkunarframkvæmdum lét hafnarnefnd smíða feikimikinn tréfleka, er var um 12x12 metrar að flatarmáli. Hann var gjörður úr gildum trjám. Á þau var neglt þilfar úr plönkum. Flekinn flaut á 200 trétunnum. Gildri stoð var komið fyrir á flekanum og lyftirá. Þar var einnig öflug handvinda.
Þegar svo þessari flekagerð var lokið, var hann dreginn út á milli hafnargarða og festur þar vel. Síðan var ég færður í kafarabúning og látinn síga til botns.
Hvernig geðjaðist þér svo að hlutunum, þegar niður kom?
Eg hugsaði fyrst og fremst til frelsara míns og drottins. Mér var það Ijóst, að þetta gat verið lífshættulegt starf. En væri hann með mér. þyrfti ég ekkert að óttast. Hann mundi vel fyrir öllu sjá. Svo varð einnig reyndin á, því að þetta starf vann ég meira og minna í 25 ár og varð aldrei fyrir neinu slysi. Manstu hverjir voru staddir á flekanum, þegar þú renndir þér fyrst í hafið?
Já, það man ég. Fyrst og fremst var það flekaáhöfnin, 8 manns, og hafnarnefnd. Einnig voru þar hafnarvörðurinn, Geir á Geirlandi, hafnsögumaðurinn, Hannes Jónsson, og bæjarstjórinn, Kristinn Ólafsson.
Hvernig var grjótinu náð upp?
Hafnarnefnd hafði fest kaup á geysimiklum grjóttöngum af sanddæluskipinu Uffe. Þær voru smíðaðar úr fjaðrastáli og þoldu ótrúlega mikla sveigju. Þær voru mjög næmar og héldu vel hnöttóttum steinum. Eftir þeim smíðaði síðan Matthías Finnbogason. smiður hafnarinnar, margar tangir stærri og minni. Þær voru engu síðri þeim dönsku. Matthías reyndist mikill snillingur bæði við nýsmíðar og viðgerðir á áhöldum hafnargerðarinnar á þessum árum og vissulega einn af hennar allra þörfustu mönnum.
Auðvitað hefur áhuginn við starfið og vinnugleðin verið ríkjandi. þegar séð varð, að þetta starf mundi allt takast vel og ykkur heppnast að dýpka innsiglinguna eða Leiðina. sem verið hafði hættuleg mannslífum og til trafala útgerð Eyjamanna?
Já, áhugi Eyjamanna var mikill og mikil bjartsýni ríkjandi. þegar séð varð að takast mætti að fjarlægja grjótið og dýpka Leiðina, því að á þessum árum var það algeng sjón að sjá báta Eyjamanna standa grunn á þessum stað og bíða flæðis til þess að komast heilir í höfn. Þó voru margir þeirra ekki stærri en 10—12 smálestir.
Já, þetta kannast ég við, og oft var þá erfitt að afferma fluthingaskip, sem komu með kol og salt og aðrar nauðsynjavörur.
Já. þess voru mörg dæmi, að þau þurftu að bíða 10—15 daga eftir því að tók væru á að fara með þau inn á höfnina til affermingar. Það var allt háð veðráttunni og sjávarstraumunum sökum þess, hve Leiðin var grunn. Sökum þessara tafa og „óorðs“, sem Vestmannaeyjahöfn hafði á sér, þurftu Eyjamenn að greiða hærri farmgjöld en flestir aðrir landsmenn. Einnig þurfti að greiða skipunum biðtímann. Allt orkaði þetta til hækkunar á vöruverði í Eyjum.
Hvernig gekk annars að ná grjótinu upp á flekann og hvað var gert af því?
Þegar ég var kominn upp á lag með að festa tangirnar á steinunum, gekk verkið jafnt og vel, og við hlóðum flekann daglega, þegar gott var í sjó, kyrrð og gott næði. Væri ylgja og mikill straumur, gekk allt verr. Þegar við höfðum hlaðið flekann, var hann leystur úr festum og dreginn upp að Berggangi á Heimakletti. Þar var grjótinu sökkt í hafið. Eftir að hafin var bygging Básaskersbryggjunnar og stálþilið þar sett, var grjótið úr Leiðinni notað þar i uppfyllingu.
Hvað var kaupið hjá þér þetta fyrsta sumar við köfunarstörfin?
Tímakaupið var 5 krónur.
En hve langur var daglegur vinnutími?
Fyrst var ég 4—5 tíma niðri daglega.
Kafaðirðu alltaf einn?
Já, fyrst í stað var ég einn. Menn voru afar tregir til að reyna að kafa. Sumir reyndu að vísu en gáfust fljótt upp. Sögðust þeir heldur vilja láta skjóta sig en vinna þvílíkt verk. Þegar líða tók á fyrsta sumarið (1927 ) gerði Sigurður Oddgeirsson frá Ofanleiti það fyrir mig að reyna að kafa með mér og vinna á hafsbotni. Honum tókst þetta vel, og vann hann síðan með mér, það sem eftir var sumarsins. Hann reyndist mjög dugmikill verkmaður. — Næsta ár fluttist hann burt úr Eyjum. Síðan köfuðu þeir með mér Sigurjón Hans-son frá Hjalla og Jónas Sigurðsson í Skuld. sín tvö sumrin hvor og reyndust báðir ágætir verkmenn og harðduglegir við þetta starf. — Sigurjón fluttist burt úr Eyjum. en Jónas varð að hætta sökum þess. að hann þoldi ekki þessa vinnu. Eitt sumarið var fenginn kafari úr Reykja-vík. Hann vann með mér í 3 vikur. Þá hætti hann og fór heim. nieð því að hann sagði vinn-una svo erfiða. að hann vildi ekki stunda hana fyrir nokkurn pening. Eftir þessi fyrstu 5 sumur vann ég aleinn að köfuninni hér. Var unnið eftir þetta við köfun hér á hverju sumri? Nei, eitt og eitt sumar féll úr. Það var ekki af áhugaleysi hafnarnefndar eða bæjarstjórn-ar heldur sökum fjárskorts, sem eðlilegt var, þar sem ríkissjóður greiddi ekki nema % af kostnaði við hafnarframkvæmdir á þeim ár-um. Og fram að þessum tíma hafði hann ekki greitt nema Y± kostnaðarins. Jóhann Þ. Jós-efsson kom því til leiðar á Alþingi, að ríkis-framlagið var hækkað upp í Vs- Það var að sjálfsögðu til stórbóta. Vannstu ekkert að byggingu hafnargarð-anna? Jú, ég vann við það að slétta botninn að framanverðu undir steinkerið í Norðurgarðin-um, en það var steypt hér. Guðmundur heitinn Magnússon smiður á Goðalandi var þá verk-stjóri við hafnargerðina og sá hann um smíði kersins, en teikninguna gerði Finnbogi Rútur Þorvaldsson, hafnarverkfræðingur. Þetta stóra ker var gjört úr járnbentri steinsteypu. 10x15 metrar að botnflatarmáli, með 16 hólfum. Því var sökkt á sinn stað og það síðan fyllt með grjóti, sem við tókum upp úr innsiglingunni. Grjótið var lagt í sementsblöndu. Á þessu keri stendur hausinn á Hörgevrargarði. Hann hef-ur lítið haggazt, síðan hann var fullgerður sumarið eða haustið 1929. Síðan var þarna reistur viti, svo sem kunnugt er. Daginn. sem grind hans var reist, hélt hafnarnefnd öllum hafnarverkamönnum og öðrum starfsmönnum hóf á nyrðri hafnargarðinum (Hörgeyrargarð-inum). eins konar reisigildi. I hófi þessu fluttu ræður þeir Finnbogi Rútur Þorvaldsson, hafn-arverkfræðingur. og Jóhann Þ. Jósefsson, al-þirrgismaður, og minntust þeir hins mikla á-fanga, sem náðst hafði í hafnarmálum Eyja-búa og þökkuðu hafnarv erkamönnum vel unn-in störf. A þessum árum áttu sér stað tíðar bilanir á sv ðri hafnargarðinum. Var þá hafizt handa um að setja járnþil með honum að austanverðu og breikka hann um leið og styrkja. Við þetta verk vann ég á sjávarbotni. Þar var ég látinn stafla strigapokum með sementsblöndu innan við járnþilið og niður við botninn. Síðan fyllt-um við upp innan við járnþilið með grjótinu, sem við drógum daglega upp úr innsiglingu hafnarinnar og slógum þannig tvær flugur í einu höggi. Allt kom þetta verk fyrir ekki. Eft-ir tvö ár höfðu Ægisdætur rifið burtu járnþil-ið. tætt það veg allrar veraldar. Þá var reynd ný aðferð til að styrkja hafnargarðinn að framan (að austan) : Saumaðir voru pokar úr sterkum segldúk. Þeir voru 3 metrar á breidd og 10—15 metrar á lengd. Jón Bjarnason, seglasaumari, saumaði pokana. Ég kafaði síðan með botnenda hvers poka niður á sjávarbotninn og kom hverjum poka þar fyrir á réttum stað, hélt þeim þar, meðan rennt var í þá sterkri steinsteypu, svo að þeir stöðvuðust. Síðan voru þeir fylltir steypunni og voru taldir hver um sig vera 50—60 smá-lestir að þyngd, þegar búið var að fylla þá. Þarna voru þeir lagðir hlið við hlið. Þessi við-gerð hafnarinnar hefur ekki haggazt síðan.

Þetta verk var framkvæmt sumarið 1942. Þá haíði alltaf öðru hvoru verið unnið að bygg-ingu og endurbótum á þessum hafnargarði í 28 ár eða síðan 1914 að bygging hans hófst. Fullyrða má, að kaupin á sanddæluskipinu „Vestmannaey" hafi verið eitt mesta happaráð, sem tekið hefur verið i hafnarmálum Eyjanna. Án þessa skips virðist sem hafnarframkvæmd-irnar hér að ýmsu leyti hefðu orðið ófram-kvæmanlegar. Eitt dæmi langar mig að nefna um það. Þegar við höfðum í nokkur ár unnið að því að rífa upp grjót úr Leiðinni, var orðið ill-kleift að festa á því tangir sókum sands, sem safnazt hafði ofan á grjótið i botninum. Allt var þar orðið á kafi í sandi. Þá reyndum við að nota slökkvidælur bæjarins til að sprauta sandinum til hliðar, blása hann ofan af grjót-inu. Það reyndist svo seinvirkt, að það var ógerningur. Þá var það, sem Böðvari Ingvars-syni, sem þá var hafnarverkstjóri, hugkvæmd-ist að láta sanddseluskip hafnarinnar vinna þetta verk á þann hátt, að sogdæla þess var látin blása frá í stað þess að soga að, láta sem sagt vélarnar vinna öfugt. Smíðuð var sérstök trekt á sogpípuenda skipsins, svo að kraftur-inn hnitmiðaðist og notaðist betur. Þetta reyndist allt þjóðráð. Vel gekk að fjarlægja sandinn, og síðan reyndist auðvelt að læsa töngunum um steinana. Þurftuð þið aldrei að sprengja stórgrýti í grjótrifinu? Jú, eitt sumarið var talsvert gert að því. Þegar við hofðum tekið upp allt grjótið úr rif-inu nema það smæsta. kom í Ijós við rannsókn, að undir rifinu var mókiöpp á annan metra á þykkt. Sogdælum skipsins gekk mjög erfiðlega að vinna á henni. Þó vannst það á, að rásir

mynduðust í klóppina og háir garðar á milH þeiira. Allt gekk þetta verk mjög semt. Þessa garða sprengdum við með sprengiefni með mjög góðum árangri. Þar nieð má segja. að eiíiðasti björninn væri unninn um dýpkun Leiðaiinnar. því að undir móklöppinni reynd-ist vera sandur. sem sanddæluskipið átti mjög auðvelt með að soga upp. Var ekki kalsamt að vinna á flekanum. þeg-ar hausta tók eða illa viðraði að sumrinu? Jú, vissulega, því að á honum var ekkert skýli fyrstu. árin. En eftir að skýli var sett á hann. gat áhöfnin drukkið þar kaffi og skipt þar vinnuklæðum. Einnig gat ég athafnað mig þar við að fara í kafarahúninginn. Seinna var svo sett niður bátavél á flekann og byggt yfir hana skvli. Vélin sneri vindunni. sem dró upp grjótið. Við alla þessa tækni gekk verkið miklu greiðar. Hve þunga hyggur þú þyngstu steinana, sem þið tókuð upp úr grjótrifinu? Finnbogi verkfræðiiigur áætlaði þunga þeirra allt að 7 smálestir. Starfið var mjög erfitt hjá vindumöunurium. áður en við feng-um bátavélina á flekann. því að vindunni var þá snúið með handafli. En menn gerðu sér þá yfirleitt allt að góðu. Aðalatriðið var þá að hafa vinnu. hvað sem stritinu og slitinu leið. Stundum á haustin. þegar góð voru veður og hætt var að vinna á fíekanum. unnum við í grjótnámi vestan við syðri hafnargarðimi. Þá höfðum við aufukrana á brautarspori á garðinum og fj'arlægðum stóra steina úr grjót-cfvi inni innan við garðinn. Surna þá steina réð-um \ ið ekki \ ið af flekanum. Einn þeirra var t. d. áætlaður 12 smálestir að þyngd (sbr. m\ rid). Nú langar mig að víkja aftur að kafarastarf-iuu. Sérstakur maður mun hafa annazt sam-bandið við þig. meðan þú vannst á sjávarbotn-iniim og þið talað saman með einhverjum merkjum? Já. til mín lá lína af flekanum. sem kölluð var líflina. Með henni gaf ég merki. Kippti ég einu sinni í línuna, þvddi, að gefa þyrfti eftir á stálvírnum. sem tangirnar voru tengdar við. Kippti ég tvivegis í líflínuna, var það merki þess. að draga skvldi upp steininn. Kippti ég hins \ egar þrívegis í líflínuna, var það merki þess. að ég óskaði sjálfur að koma upp. Arið 1929 fengum við síma í kafarahjálm-inn. Haraldur Eiríksson. rafvirkjameistari. gekk frá honum að öllu leyti. Eftir það gat ég talað við vinnufélaga mína á flekanum. Sú tækni Iétti mjög mikið allt starfið. Afköst uxu og ég var á allan hátt öruggari. Fyrst var það aSeins ég, sem gat látið til mín heyra. Síðan endurbætti Haraldur símann, svo að báðir að-ilar gátu ræðzt við. — Eftir því sem ég bezt veit. var kafarasími þessi algjör nýjung hér á landi. sá fyrsti. sem notaður var. Þegar ég var að alast upp á Austurlandi.

heyrði ég Eyjasjómenn tala um stórt bjarg. sem væri í eða við innsiglinguna hér og ylli miklum hættum, ef sjó hreyfði. Síðar las ég í Vestmannaeyjasögu Sigfúsar M. Johnsen um stein þennan. Hann telur hann hafa flutzt með hafís á fyrri hluta síðustu aldar. — Þorsteinn Jónsson í Laufási getur einnig um vágest þenn-an við Vestmannaeyjahöfn í bók sinni Alda-hvörf í Eyjum. Hann segir munnmæli herma. að steinn þessi hafi flutzt með hafís á önd-verðri 17. öld og hafi verið gizkað á. að hann væri nær 200 smálestir. Þorsteinn fullyrðir, að þú hafir átt drýgstan þátt í að fjarlægja stein þennan úr hafnarmynninu. Mig fýsir að vita nánar um það afrek þitt. Já, steinn þessi gnæfði upp úr öðru stórgrýti þarna á botninum og svo hátt, að þarinn á honum sást í sjávarskorpunni á stórstraums-fjörum. Hann var tvímælalaust erfiðasta verk-efni mitt og okkar þarna á sjávarbotninum. Ekkert viðlit var að lyfta honum með þeim tækjum, sem við höfðum ráð á. Eg hóf þetta starf með því að bregða um bjargið stálvír. Síðan skyldi gufukraninn á syðri hafnargarðinum taka í spottann. Á þenn-an hátt hugðumst við mjaka steininum á svo grunnt vatn. að hann yrði þar boraður um fjöru og sprengdur. Kraninn sleit hvern vír-inn eftir annan án þess að steinninn bifaðist. Loks festi ég á steininum sjálfan kranavírinn. sem var 2 þumlungar í þvermál. Þegar í hann var tekið, var það kraninn, sem vildi undan láta, —• steypast af sporunum. Matthias Finn-bogason var alltaf kranastjóri, þegar mest lá við. Hann lét nú festa kranann með keðjum að austanverðu í hafnargarðinum. Með þessu móti tókst að mjaka steininum upp að eyrinni vestan við hafnargarðinn. Þar var hann síðan boraður á stórstraumsfjöru og sprengdur í við-ráðanlega hluta. Grafskipið Grettir mun hafa unnið hér hluta úr sumri, áður en þú hættir kafarastörfum. Var ekki svo? Jú, rétt er það. Þegar við höfðum loks lokið við að rífa upp og fjarlægja allt stærsta grjótið og hlutana úr stóra steininum, þá var mikið eftir af smágrjóti í botninum, sérstaklega í inn-anverðri innsiglingunni. Allt þetta grjót hreinsaði grafskipið Grettir upp með miklum afköstum. Þegar skipið fór að vinna. komu í ljós stórir steinar, sem þurfti að ná upp á annan hátt eða með gamla laginu. Þá kafaði ég. — Afköst Grettis voru tröllsleg þarna í innsiglingunni. og var ég oft undrandi, þegar ég kom niður á hafsbotninn með nokk-urra daga millibili, að sjá allan þann árangur af starfinu. Segja má líka, að þetta hafi verið lokaspretturinn við að grafa út innsiglingu Vestmannaeyjahafnar, því að ekkert hefur þurft um þetta að bæta síðan og öll milliferða-skip komizt inn á höfnina hindrunarlaust. Þú munt einnig hafa verið fenginn til að hjálpa skipum, sem þurftu kafara við? Já, mjög oft. Sérstaklega leituðu hingað er-lendir togarar sem fengið höfðu vír eða vörpu í skrúfuna. Er það ekki erfitt viðfangs að ná stálvír úr skipsskrúfum? Jú. það er oft mjög erfitt. og reynir á mann til hins ýtrasta. Þó Iánaðist mér alltaf að ljúka slíkum störfum, svo að skipin þurftu ekki að leita annað. A stríðsárunum, þegar fjöldi færeyskra fiskiskipa og flutningaskipa sigldi hingað sem mest og flutti fisk til Bretlands, þurftu þau oft á hjálp kafara að halda. Ymist voru þar hiluð stýri eða skrúfa i ólagi. Eitt sinn aðstoðaði ég franska fiskiskútu með bilaða skrúfu. Geturðu gizkað á, hvað þú munir hafa kafað við mörg erlend skip á þessum árum ? Nei, það get ég ekki nákvæmlega. En þau skipta áreiðanlega hundruðum. Hvað hefurðu kafað dýpst? Það var, þegar sæsíminn slitnaði hér við Eiðið. Þá fékk landsímastjóri mig til þess að kafa og leita að sæstrengnum. Þá kafaði ég niður á 25—30 metra dýpi. Tilraun þessi bar ekki árangur. — Þetta var um haust. Um sum-arið hafði sanddæluskip hafnarinnar dælt sandi úr höfninni inn fyrir Eiði, svo að þarna var allt á kafi í sandi á sjávarbotni. — Seinna náðist sæstrengurinn upp með kröku nokkru dýpra en ég hafði komizt. Þú munt hafa kafað víðar en hér í Eyjum? Já. árið 1944 vann ég í 6 vikur á Stokks-eyri við að bora og sprengja klappir í innsigl-ingunni. Þar fannst ekkert laust grjót. heldur allt fastar klappir. Við boruðum með loft-pressu. Ég stýrði bornum á hafsbotni fyrstu 40—50 sm en síðan boraði hann án eftirlits niður í 2—3 m dýpi. Við notuðum rafmagnsstreng, þegar við kveiktum í sprengiefninu. Síðan vann ég að því að slá á grjótið. sem losnaði við spreng-ingarnar. Það var dregið upp í vélbát og losað, þar sem hentast þótti. Þarna á botninum sá ég rauðmaga liggja yfir hrognabúi utan í skerjum og flúðum og frjóvga eggin. Hann virtist una þar vel sínu ævistarfi. Mér líkaði ágætlega að vinna á Stokkseyri, og mér féll prýðilega við vinnufélaga mína. Verkstjóri var Helgi Sigurðsson. Mig rámar í það. að þú kafaðir eitt sinn við Reykjanesskaga. Já, í nóvemb'er 1946 var ég fenginn til þess að kafa fyrir Landshöfnina í Ytri-Njarðvík. Þar hafði þá verið sökkt steinkeri 100 ferm. að stærð framan við bryggjuna. Brim gerði, áður en kerið var fyllt, og þá brotnaði það og lagðist saman með þeim afleiðingum, að eng-inn bátur gat lagzt þar að bryggju. Þegar ég kom á staðinn, sögðu heimamenn mér, að tveir kafarar væru búnir að reyna við kerið án árangurs. Leizt mér þá ekki á blikuna. En það rættist hér eins og heima, að guð og Iukkan var með mér í verki. Ég kafaði fyrst til að athuga allar aðstæður. Síðan boraði ég kerhlutana og sprengdi með sprengiefni, sag-aði og klippti steypujárn, og eftir 8 daga var verki þessu Iokið til mikillar ánægju öllum heimamönnum í Ytri-Njarðvík. Verkstjóri þarna var Júlíus Þórarinsson úr Eyjum. Nú Iangar mig að lokum mest til að forvitn-ast um það. hvernig umhorfs er á sjávarbotn-inum hér við hafnargarðana og hvort þú sást þar ekki ýmisleg sjávardýr. Segja má, að á sjávarbotni sé maður kom-inn í annan heim. Það fer mjög eftir birtu lofts eða skyggni, hversu langt maður sér frá sér. En takmörk yzta sjónhrings eru þar alltaf þoka og myrkur. Þarna sá ég daglega smáufsa af mörgum stærðum, stútung og alltaf meira og minna af kola, bæði þykkvalúru, skarkola og sandkola. Einnig voru þar sprettfiskar, krabb¬

ar og stórir kuðungar. Krabbarnir fara hægt um botninn á sínum kunna krabbagangi. og kuðungarnir líða þar áfram. En kuðunga-krabbinn er oft snar í snúningum. Stundum er hann fljótur að bregða sér úr kuðungnum og í hann aftitf. Oft sá ég líka steinbít þarna á ferð og koma inn í höfnina. Þá kom allt í einu aukin hreyfing á kuðungana og krabbana. Þeir hræddust steinbítinn auðsjáanlega og flýttu sér sem mest þeir máttu. Sæi kuðungakrabbinn hættuna yfirvofandi. sá ég það oft mér til undr-unar. að hann yfirgaf kuðunginn og skreið nið-ur á milli steina, meðan steinbíturinn fór hjá. Síðan smeygði hann aftur halanum á sér inn í kuðunginn og rölti af stað. eins og ekkert væri. Mér var það mikil ráðgáta. hvernig kuð-ungasniglarnir og krabbarnir skynjuðu ná-lægð steinbítsins, sem étur þá af græðgi. svo sem kunnugt er. Mér flaug í hug, hvort hér gæti verið um straumskynjanir að ræða í sjón-um. Tvívegis sá ég seli af meðalstærð. Þeir virt-ust skoða mig í krók og kring og hurfu síðan á burt. Einu sinni eða tvisvar sá ég humar. Hann þótti mér einna einkennilegastur í tilburðum og háttalagi. Fyndist honum eitthvað grun-samlegt, sem hætta gæti stafað af, sló hann halanum undir kviðinn og þaut aftur á bak. og hvarf hann þá með öllu. Kom svo aftur ,.á sundi eða eins og hann fálmaði sig áfram með örmunum. Væri hann kyrr við botninn. hélt hann sig upp við stein og sneri halanum að steininum en hélt griptöngunum fyrir sér eins og hann væri viðbúinn árás. Þetta benti til þess, að hann vildi ógjarnan láta koma sér í opna skjöldu eða aftan að sér og ef til vill bíta af sér halann. Utan í norðureyrinni (Hörgeyrinni) er mjög mikill sjávargróður. Þarna eru hæstu þaraþönglarnir full mannhæð. Þarna er einnig mikill annar gróður. Það er ógleymanleg sjón í björtu veðri að skyggnast um í þessu undra ríki. Allt er þarna þakið marglitum sjávarjurt-um, sem glitra og sindra í öllum regnbogans litum. Eg held, að þetta sé fegursta blóma-skrúð, sem ég hefi augum litið. Það er vissu-lega eitt af mýmörgum dásemdum skaparans. Manstu, Finnur, helztu verkstjóra á flekan-um og líflínumenn? Já, ég man þá nokkurn veginn. Þeir voru þessir: Guðbrandur Magnússon úr Reykjavík, og svo þessir héðan úr Eyjum: Jón Sveinsson, Nýlendu, Gísli B. Jónsson, Haukfelli, Böðvar Ingvarsson, Ásum, Árni Þórarinsson, hafnsögumaður og Bergsteinn Jónasson, hafnarvörður. Og líflínumennirnir voru þessir: Sigurður Oddgeirsson frá Ofanleiti, Þórður Gíslason, meðhjálpari, Stanley Guðmundsson, Heiði, Kristinn Gíslason, Herjólfsgötu 7, Ari Mark-ússon, Akurey og Ingibergur Friðriksson, hafnsögumaður. Að lokum færi ég þér alúðarþakkir fyrir alla þessa fræðslu. Vissulega hefur þú unnið mikið afrek í þessu starfi þínu, sem allir Eyja-búar njóta beint og óbeint um langan aldur. Þú hlýtur að hafa hlotið opinbera viðurkenn-ingu fyrir þetta mikla þrekvirki og þjóðhags-lega afrek. A s.l. ári kjöri Kafarafélag íslands mig heið-ursfélaga sinn. En ánægjulegasta viðurkenn-ingin er meðvitundin um það, að hafa notið guðshj álpar til þess að geta unnið almenningi og þjóðfélaginu eitthvert gagn, óbornum kyn-slóðum til hagsældar og blesunar. Hversu skyldir eruð þið Einar Sigurðsson? Við erum bræðrasynir, því að faðir minn var bróðir Sigurðar heitins Sigurfinnssonar, hreppstjóra. \7ið erum af hinni kunnu Högna-ætt.


Það var áu efa þrekvirki að vinna að kaf-arastörfum við Vestmannaeyjar um aldarfjórð-ung. Þeim manni, sem það þrekvirki gat innt af hendi, er áreiðanlega ekki fisjað saman. Við Eyjabúar þekkjum það líka af reynslu, að Frið-finnur Finnsson er þrekmaður hinn mesti. hraustur vel og afburða dugmikill. Vöxtur hans og karlmennska ber þess vitni. að hann hefur einhverntíma fengið ærlegan bita hjá hinum mætu og merku hjónum Sigurbjörgu og Sigurði í Brekkhúsi, fósturforeldrunum. Að sjálfsögðu kemur hér einnig ætterni til greina. Með kafarastarfi sínu hér við höfnina öll þessi ár hefur Friðfinnur Finnsson markað glögg spor í atvinnusögu byggðarlagsins með öðrum verkamönnum og verkstjórum, sem þar unnu vel og lengi. Ekki aðeins byggðar¬lagið heldur allt þjóðfélagið íslenzka nýtur þess hins mikla og markverða starfs, hafnar-framkvæmda í stærstu verstöð landsins. Vestmannaeyjum 1960. Þ. Þ. V. Ofanritað samtal birtist í Bliki, hiiiu gagnmerka ársriti Gagnfræðaskólans árið 1961. I greininni er sagt á mjög skýran hátt í máli og mynduni frá 25 ára starfi við hafnargerðina hér. Þá þykir Sjómannablaði okkar mikill fengur að fá að birta hana í sínu blaði, sem eingöngu f jallar um sjó-mannsstarfið og skyld málefni. Höfundur greinarinnar, Friðfinnur Finnsson, byrjaði sína sjómennsku á 15. ari, þá á áraskipi,'og síðar réri hann 20 vetrarvertiðir á mótorbátum. Hann hefur góðfúslega leyft okkur að birta greinina hér. Ritnefndin.